Samherji kominn með yfir 30 prósent í Eimskip og mun gera yfirtökutilboð

Samherji hefur bætt við sig hlutum í Eimskip og mun á næstu fjórum vikum gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð vegna þessa. Sitjandi forstjóri, sem boðað hefur starfslok í lok mánaðar, segist vona að lífeyrissjóðir og aðrir hluthafar eigi áfram í félaginu.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja.
Auglýsing

Sam­herji Hold­ing ehf., annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, bætti í gær við sig 3,05 pró­sent hlut í Eim­skip. Við það fór eign­ar­hlutur félags­ins í flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu upp í 30,11 pró­sent og þar með mynd­að­ist yfir­töku­skylda. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að innan fjög­urra vikna muni Sam­herji gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð. 

Þar er haft eftir Björgólfi Jóhanns­syni, starf­andi for­stjóra Sam­herja, að til­gang­ur­inn með þessum auknu hluta­fjár­kaupum sé fyrst og fremst að sýna þá trú sem Sam­herji hefur á rekstri Eim­skips. „Eim­skip er allt að einu í meiri­hluta­eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem saman eiga rúm­lega helm­ing hluta­fjár. Er það skiln­ingur minn að stjórn Eim­skips og stjórn­endur hafi verið ein­huga um þær miklu breyt­ingar sem gerðar hafa verið á rekstr­in­um. Sam­herji telur Eim­skip vel til þess fallið að vera áfram skráð í kaup­höll og  vonar að sem flestir hlut­haf­ar, stórir og smá­ir, sjái hag sínum best borgið með því að styðja áfram við þá upp­bygg­ingu og fylgi félag­inu um ókomin ár.“

Sam­stæða með mikla fjár­fest­inga­getu

Hlut­hafa­fundir Sam­herja sam­­þykkti 11. maí 2018 að Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unni yrði skipt upp í tvennt. Skipt­ingin var látin miða við 30. sept­­em­ber 2017. Eftir það er inn­­­­­lendu starf­­­sem­in og starf­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­­sem­i og hluti af fjár­­­fest­ing­­ar­­starf­­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Hold­ing ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­­ur­­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lagi á Ísland­i. 

Auglýsing
Sameiginlegt eigið fé félag­anna tveggja sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una, og eitt stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi, var 111 millj­arðar króna í lok árs 2018. Fjár­fest­inga­geta þeirra er því mik­il.

Félögin tvö stunda ekki ein­ungis við­­skipti með sjá­v­­­ar­af­­urð­­ir. Sam­herji hf. á til að mynda stóran hlut í smá­­­söluris­­­anum Hög­um, en það er sjötti stærsti hlut­hafi þess með 4,22 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Sam­herji Hold­ing ehf. er síðan stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­­­skip, með nú 30,11 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Bald­vin Þor­­­­steins­­­­son, sonur Þor­­­­steins Más og fram­­­kvæmda­­­stjóri við­­­skipta­­­þró­unar hjá Sam­herja, er stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Eim­­­skips og í jan­úar í fyrra var Vil­helm Már Þor­­­steins­­­son, frændi þeirra, ráð­inn sem for­­­stjóri skipa­­­fé­lags­ins. 

Rann­sóknir vegna meintra mútu­greiðslna í Namibíu

Sam­herji hefur verið í miklu brim­­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­­ar­inn­­­ar, Al Jazeera og Wiki­leaks um mút­­u­greiðsl­­­ur, meint pen­inga­þvætti og skattsnið­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­þús­undum gagna og upp­­­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­­manns Sam­herja í Namib­­­íu. 

Þegar er búið að hand­­­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­­ar­út­­­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­­ónir namibískra doll­­­­­­ara, jafn­­­­­­virði 860 millj­­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­­sóttan kvóta í land­in­u.  Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­for­­­­­­maður namibísku rík­­­­­­is­út­­­­­­­­­­­gerð­­­­­­ar­inn­ar Fis­hcor ný­ver­ið, Tam­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­­son­ur Esau, Ricardo Gusta­vo, sam­­­­­­starfs­­­­­­maður hans og Pius Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­­skyld­u­­­­­­bönd­um, ákærð­­­­­ir.

Mál Sam­herja er til rann­­­sóknar í Namib­­­íu, á Íslandi og í Nor­egi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­­­mála­rann­­­sókn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent