Algjör óþarfi að hamstra mat

Það er engin ástæða fyrir íslenskan almenning að hamstra mat eða aðrar nauðsynjavörur. Það er nóg til af mat og nóg til af lyfjum, segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Hamstur veldur óþarfa álagi á verslunarfólk.

„Við hvetjum almenning til að haga innkaupum sínum til heimilisins með eðlilegum hætti, það er engin ástæða til annars,“ sagði Andrés.
„Við hvetjum almenning til að haga innkaupum sínum til heimilisins með eðlilegum hætti, það er engin ástæða til annars,“ sagði Andrés.
Auglýsing

Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka versl­unar og þjón­ustu, seg­ist hafa heyrt frá versl­un­ar­fólki að síð­ustu daga hefði það upp­lifað Þor­láks­messu-traffík, algjör­lega að ástæðu­lausu. Hann kom því á fram­færi við þjóð­ina að engin ástæða væri til þess að hamstra mat og óþarfa hamstur setti gíf­ur­legt og óþarft álag á versl­un­ina í land­in­u. 

Andrés Magnússon

„Það eru til nægar birgðir af mat í land­inu, bæði af inn­fluttum mat og inn­lendum mat. Það er engin ástæða til þess fyrir almenn­ing í þessu landi að hamstra mat eða aðrar nauð­synja­vörur til heim­il­is­ins,“ sagði Andrés á blaða­manna­fundi í sam­hæf­ing­ar­stöð almanna­varna í Skóg­ar­hlíð í dag.

„Við hvetjum almenn­ing til að haga inn­kaupum sínum til heim­il­is­ins með eðli­legum hætti, það er engin ástæða til ann­ar­s,“ sagði Andrés og bætti við að sömu­leiðis væri engin ástæða til þess að hamstra lyf í apó­tek­un­um, óvenju mikið væri til af lyfjum í land­inu.

Auglýsing

Sam­komu­bann verður í gildi á Íslandi frá og með aðfara­nótt mánu­dags. Und­an­farna daga hafa borist fréttir af miklu álagi í mat­vöru­versl­un­um, jafn­vel þannig að ekki gef­ist ráð­rúm til þess að fylla jafn­óðum á hill­urn­ar. Þegar sam­komu­bannið tekur gildi verður lagt bann við því að fleiri en 100 manns verði á sama stað á sama tíma.

Bannið mun gilda um stór­­mark­aði og aðrar versl­anir og verður fjölda þeirra sem geta verslað í einu í þeim stýrt, þótt útfærsla á því liggi ekki fyr­ir að svo stöddu. Það er þó engin ástæða fyrir fólk að rjúka til núna og hamstra mat, þar sem nægar birgðir eru til í land­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent