Kári tekur ofan fyrir Ölmu, Þórólfi og Víði í auðmýkt

Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hrósar þeim sem standa í eldlínu aðgerða gegn útbreiðslu kórónuveirunnar hástert og segir þau „ekki bara flinkust heldur líka flottust og eru að leggja mikið að mörkum til þess að bjarga mannslífum“.

Kári Stefánsson Mynd: Íslensk erfðagreining
Auglýsing

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, hrós­ast Ölmu ­Möll­er land­lækni, Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varn­ar­lækni og Víði Reyn­is­syni, yfir­lög­reglu­þjóni hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, hástert í stöðu­upp­færslu á Face­book. 

Þar segir Kári að við­brögð­hér­lendra ­stjórn­valda við veiru­far­aldr­inum sem veld­ur COVID-19 sjúk­dómnum hafi verið til fyr­ir­myndar og nákvæm­lega eftir bók­inni. „Alma og Þórólfur og Víðir hafa verið yfir­veguð og ekki látið hávaða ýta sér út í aðgerðir sem vinna gegn því mark­miði að hemja óværuna. Þau eru okkur til mik­ils sóma. Þau eru ekki bara fl­inku­st heldur líka flott­ust og eru að leggja mikið að mörkum til þess að bjarga ­manns­líf­um.[...]Það eru for­rétt­indi að hafa við stjórn­völ­inn í okkar aðgerðum fólk sem segir satt, er ein­lægt og leggst ekki svo lágt að reyna að plata. Ég tek ofan fyrir þessu fólki í auð­mýkt.“Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller hafa leitt baráttu Íslands gegn útbreiðslu COVID-19.

Kári gagn­rýnir hins vegar harð­lega aðgerðir Dana, sem hafa lokað landa­mærum sínum til að reyna að hemja útbreiðslu veirunn­ar, eftir að hún hefur samt sem áður breiðst víða út í land­inu. „Er hug­myndin að loka veiruna inni? Var­la, vegna þess að hún grass­erar í öllum lönd­unum í kringum þá. Þeir eru ein­fald­lega að setja á svið leik­þátt sem á að sann­færa fólkið í land­inu um að þeir séu svo afger­andi og dug­leg­ir. Þeir ætla meira að segja að nota dáta til þess að verja landið gegn veiru sem er þegar komin þang­að. “

Við­brögð hér­lendra stjórn­valda við far­aldr­inum hafa verið til fyr­ir­myndar og nákvæm­lega eftir bók­inni. Alma og Þórólf­ur...

Posted by Kari Stef­ans­son on Sat­ur­day, March 14, 2020





Íslensk erfða­grein­ing stendur sjálf í stór­ræðum vegna útbreiðslu veirunnar en fyr­ir­tækið bauðst til þess að skima almenn­ing eftir COVID-19 sjúk­dómn­um. 

Auglýsing
Þær skimanir hófust í gær og unnið er úr nið­ur­stöðum þeirra um næt­ur. Þús­undir Íslend­inga bók­uðu tíma í skimun eftir COVID-19 ­sjúk­­dómnum hjá Íslenskri erfða­­grein­ingu eftir að opnað var fyrir bók­­anir á fimmtu­dags­kvöld og fljót­­lega þurfti að bæta við tímum vegna mik­illar eft­ir­­spurn­­ar.

Skimanir hófust í Turn­in­um, Smára­­torgi 3 í Kópa­vogi  klukkan 10 í gær. Fólki sem á bók­aðan tíma er bent á að nota inn­­­gang á fyrstu hæð en þar verður fyrir starfs­­maður sem tekur á móti þeim.

Í til­kynn­ingu frá Íslenskri erfða­grein­ingu sem send var út í gær sagði að nýja kór­óna­veiran sem veldur sjúk­­dóm­inum COVID-19 dreif­ist nú hratt um heim­inn og hefur sett venju­bundið líf úr skorð­­um. Mik­ill meiri­hlut­i þeirra sem smit­­ast verði ekki alvar­­lega veik­­ir. Flestir sem komi í skimun hafi aldrei fundið fyrir ein­­kennum og séu því lík­­­lega ekki smit­andi. Það sama eigi við alla starfs­­menn í hús­inu, hvort sem þeir starfa við skimanir eða ekki. Það sé því ekki meiri hætta á ferðum í hús­inu en ann­­ars staðar í borg­inni þar sem fólk kemur sam­­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent