Áhætta tekin með því að hittast í sóttkví

Ertu í sóttkví og langar mikið til að hitta aðra sem eru einnig í sóttkví? Slíkir fundir eru ekki áhættulausir enda langt í frá allir sem eru í sóttkví smitaðir.

Nú skal gæta þess að halda að minnsta kosti tveggja metra fjarlægð frá öðrum á mannamótum.
Nú skal gæta þess að halda að minnsta kosti tveggja metra fjarlægð frá öðrum á mannamótum.
Auglýsing

Dæmi eru um það að fólk sem er í sótt­kví á sitt hvor­um ­staðnum hitt­ist til að gera sér lífið bæri­legra. Að mati sótt­varn­ar­læknis er það í lagi í vissu til­fellum en hafa ber í huga að margir þeir sem eru í sótt­kví eru ekki sýktir af nýju kór­ónu­veirunni en aðrir sem sæta sótt­kví gæt­u ­mögu­lega veirð það. 

„Hættan er sú að ef annar ein­stak­ling­ur­inn eða fleiri í þessum hópi veik­ist þá leng­ist sótt­kvíin hjá hinum um tvær vik­ur,“ sagð­i Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Það er sú áhætta sem menn taka með því að hitt­ast í sótt­kví. Það eru dæmi um að ­sótt­kvíin leng­ist upp í 3-4 vik­ur.“

Auglýsing

Alma Möller land­læknir brýnir fyrir fólki að lesa vel þær ­leið­bein­ingar sem gerðar hafa verið fyrir þá sem eru í sótt­kví ann­ars vegar og ein­angrun hins veg­ar.

Í dag eru 3.718 manns í sótt­kví í heima­húsum á Ísland­i, lang­flestir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Yfir 530 hafa lokið sótt­kví frá því að far­aldur COVID-19 braust út. Allir sem búsettir eru á Íslandi og eru að koma til lands­ins frá útlöndum þurfa nú að fara í sótt­kví. Ekki er ljóst hversu margir eru að koma með flugi til lands­ins þessa dag­ana. Upp­lýs­ing­arnar liggja ekki fyrir þar sem margir eru að afbóka flug­ferðir um þessar mund­ir, sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fund­inum í dag.

­Sótt­kví fyrir þau sem mögu­lega eru smituð og ein­angr­un þeirra sem grein­ast er nauð­syn­leg til að hægja á útbreiðslu, segir m.a. á vefnum Covid.is þar sem nálg­ast má ýmsar upp­lýs­ing­ar. 

Ef þú ert eldri borg­ari eða með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma er þér ráð­lagt að halda þig fjarri manna­mót­u­m og fjölda­sam­kom­um. Forðastu einnig að umgang­ast fólk sem er með ein­kenni sem m­inna á flensu, segir í leið­bein­ingum land­lækn­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent