Dæmi eru um það að fólk sem er í sóttkví á sitt hvorum staðnum hittist til að gera sér lífið bærilegra. Að mati sóttvarnarlæknis er það í lagi í vissu tilfellum en hafa ber í huga að margir þeir sem eru í sóttkví eru ekki sýktir af nýju kórónuveirunni en aðrir sem sæta sóttkví gætu mögulega veirð það.
„Hættan er sú að ef annar einstaklingurinn eða fleiri í þessum hópi veikist þá lengist sóttkvíin hjá hinum um tvær vikur,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í dag. „Það er sú áhætta sem menn taka með því að hittast í sóttkví. Það eru dæmi um að sóttkvíin lengist upp í 3-4 vikur.“
Alma Möller landlæknir brýnir fyrir fólki að lesa vel þær leiðbeiningar sem gerðar hafa verið fyrir þá sem eru í sóttkví annars vegar og einangrun hins vegar.
Í dag eru 3.718 manns í sóttkví í heimahúsum á Íslandi, langflestir á höfuðborgarsvæðinu. Yfir 530 hafa lokið sóttkví frá því að faraldur COVID-19 braust út. Allir sem búsettir eru á Íslandi og eru að koma til landsins frá útlöndum þurfa nú að fara í sóttkví. Ekki er ljóst hversu margir eru að koma með flugi til landsins þessa dagana. Upplýsingarnar liggja ekki fyrir þar sem margir eru að afbóka flugferðir um þessar mundir, sagði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn á upplýsingafundinum í dag.
Sóttkví fyrir þau sem mögulega eru smituð og einangrun þeirra sem greinast er nauðsynleg til að hægja á útbreiðslu, segir m.a. á vefnum Covid.is þar sem nálgast má ýmsar upplýsingar.
Ef þú ert eldri borgari eða með undirliggjandi sjúkdóma er þér ráðlagt að halda þig fjarri mannamótum og fjöldasamkomum. Forðastu einnig að umgangast fólk sem er með einkenni sem minna á flensu, segir í leiðbeiningum landlæknis.