Alma: Trúið okkur – þetta er gert með ykkar hagsmuni í huga

Alma Möller landlæknir hrósaði fólki og þakkaði fyrir jákvæðni og samstöðu nú á tímum kórónuveirunnar. Hún sagði bestu brandara dagsins af netinu rata inn á stöðufundi almannavarna „og létta okkur lund“.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, landlæknir.
Auglýsing

„Ég ætla að byrja að tala til ykkar allra sem eruð á sjúkra­hús­um, hjúkr­un­ar­heim­ilum eða öðrum stofn­unum þar sem heim­sóknir eru ­tak­mark­að­ar,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

„Við gerum okkur auð­vitað öll grein fyrir því hvað það hlýtur að vera erfitt, fyrir bæði ykkur og ást­vini. En trúið okk­ur, þetta er ­gert auð­vitað fyrst og fremst með ykkar hags­muni í huga. Þarna vegur þyngra að verja ykkur fyrir veirunni, þannig að við erum að taka meiri hags­muni fyr­ir­ minni. Ég veit að starfs­fólk hlúir vel að ykkur og við sendum hlýjar kveðj­ur.“

Auglýsing

Frá og með deg­inum í dag verður allri val­kvæðri þjón­ust­u innan heil­brigð­is­kerf­is­ins hætt. „Við þurfum að end­ur­skipu­leggja heil­brigð­is­þjón­ust­una til að ráða við hvoru tveggja; að sinna öllum því sem teng­ist COVID-19 og því að geta veitt nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ust­u,“ sagð­i Alma á fund­in­um.

Öllu brýnu verður sinnt

Engar val­kvæðar skurð­að­gerðir verða því fram­kvæmdar á næst­unni og ekki heldur rann­sóknir eins og

­spegl­an­ir. Þá verður tann­lækn­ing­um hætt, „nema að það sem er brýnt. Og þetta á við hvort heldur er innan eða utan­ op­in­bera kerf­is­ins.“

Alma sagði ástæð­una fyrir þess­ari ákvörðun þrí­þætta. „Heil­brigð­is­starfs­menn ­geta smitast, sjúk­lingar geta smit­ast og þetta getur kallað á auka álag eins og komur á bráða­mót­tökur og legur á sjúkra­húsum ef upp koma fylgi­kvill­ar.“

Ítrek­aði hún þó að allar brýnar aðgerðir og rann­sóknir verð­i ­gerð­ar, „öllu brýnu verður sinnt“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent