Ekkert smit hefur greinst í Vestmannaeyjum síðan 6. apríl og eru því komnir fimm dagar án þess að nýtt smit greinist.
Frá þessu greinir lögreglan í Vestmannaeyjum á Facebook.
Þar kemur fram að hafa verði í huga að við skimun Íslenskrar erfðagreiningar bættust mörg smit við dagana 3.-5. apríl sem hefðu líklega greinst síðar hefði skimun ÍE ekki farið fram. „Það er of snemmt að fagna, við erum ekki komin fyrir vind og að öllum líkindum eiga fleiri eftir að greinast með staðfest smit á næstu dögum,“ segir í færslu lögreglunnar.
Samtals hafa 103 greinst með veiruna, 45 náð bata og eru því enn 58 með virk smit og eru í einangrun. Í dag eru 188 manns í sóttkví.
Tilkynning frá aðgerðastjórn Ekkert smit hefur greinst síðan 6. apríl í Vestmannaeyjum og eru því komnir 5 dagar án...
Posted by Lögreglan í Vestmannaeyjum on Saturday, April 11, 2020
Ákveðið hefur verið að samkomubann miðað við 10 manns gildi áfram í Vestmannaeyjum að minnsta kosti til og með sunnudagsins 19. apríl. Þá verða komnar fjórar vikur frá því að það var sett á. Markmiðið er að hefta útbreiðslu sjúkdómsins og verja þannig mannslíf.
„Vestmannaeyingar hafa staðið sig vel í að fara eftir reglum og þess vegna erum við að ná árangri. Við gefumst ekki upp og klárum þetta saman.“