Þurfum að virða fjarlægðarmörk og forðast mannfjölda út þetta ár

Sóttvarnalæknir segir okkur þurfa að stunda ítarlegt hreinlæti, virða fjarlægðarmörk og forðast mannmarga staði að minnsta kosti út allt þetta ár.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­læknir segir að þó að aðgerðum vegna far­ald­urs COVID-19 verði aflétt smám saman eft­ir 4. maí sé ljóst að við þurfum öll að stunda ítar­legt hrein­læti, virða fjar­lægð­ar­mörk, forð­ast mann­marga staði og vernda við­kvæma hópa að minnsta ­kosti út þetta ár. Aðgerðum sem í gildi eru verður aflétt í áföngum sem hver og einn getur stað­ið í nokkrar vik­ur. Ef smitum fjölgar á ný verða aðgerðir hertar aft­ur.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag fór Þórólfur yfir nýj­ustu tölur um út­breiðslu kór­ónu­veirunnar hér á landi. Hann sagði að óvenju fá sýni hefðu ver­ið ­rann­sökuð í gær en að sýnum sem skoðuð voru hjá veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans hafi 4 pró­sent reynst jákvæð og 1 pró­sent sýna hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Átta ­sjúk­lingar liggja á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans með COVID-19 og sex þeirra eru í önd­un­ar­vél. Tveir eru á gjör­gæslu á Akur­eyri en hvor­ugur þeirra er í önd­un­ar­vél.

„Ég held að það sé óhætt að segja að far­ald­ur­inn sé á nið­ur­leið eins og und­an­farna daga og að ­lítið sam­fé­lags­smit sé í gang­i,“ sagði Þórólf­ur. Hann ítrek­aði þó að álagið á spít­al­ana er mjög mik­ið. Hápunkti þar verður ekki náð fyrr en á næstu dög­um.

Auglýsing

Hins vegar megi búast við smiti áfram í sam­fé­lag­inu, að það verði við­var­and­i um hríð en hversu lengi er enn ómögu­legt að segja. Stór hópur sam­fé­lags­ins er lík­lega mót­tæki­legur fyrir veirunni. Ekki er enn vitað hversu stór en það mun koma í ljós í mótefna­mæl­ingum sem hefj­ast síðar í mán­uð­in­um.

„Allt þetta þurfum við að hafa í huga þegar við hugsum um aðgerðir næstu mán­aða. Tryggja þarf að far­aldur fari ekki aftur á flug svo aðgerðir þurfi ekki að fara aftur á byrj­un­ar­reit.“

Tak­mark­anir settar á stórar sam­komur í sumar

En hvað ­tekur við eftir fjórða maí, eftir að núver­andi sam­komu­bann fellur úr gild­i? Þórólfur segir að þá hefj­ist aðgerðir sem miði að því að létta af þeim aðgerð­u­m ­sem eru nú við lýði. Engin ein góð aðferð, upp­skrift, er til og því lík­legt að ríki mun­i aflétta sínum aðgerðum með mis­mun­andi hætti. „Þetta verður að ger­ast á til­tölu­lega löngum tíma til að vera viss um að far­aldur blossi ekki upp að nýju.“

­Sótt­varna­lækn­ir mun á næstu dögum senda til­lögur til heil­brigð­is­ráð­herra um hvernig aflétta skuli aðgerð­unum í skref­um.

Þórólf­ur ­sagði að hvert skref muni taka 3-4 vikur og aflétt­ing allra aðgerða í heild því ná yfir ein­hverja mán­uði, „og yfir sum­ar­tím­ann,“ benti hann á. „Lands­menn þurfa að vera undir það búnir að tak­mark­anir verði settar á stórar sam­komur í sum­ar.“

Þá eru á­kveðnir hlutir sem við verðum að halda áfram, sagði Þórólf­ur. Lands­menn eru á­fram hvattir til að fram­fylgja til­mælum um ítar­legan hand­þvott og hand­spritt­un. Þá eru þeir einnig hvattir til að halda áfram tveggja metra fjar­lægð­ar­mörk­in, að vernda við­kvæma hópa og forð­ast mann­marga staði. „Þetta þurfum við að við­hafa út þetta ár og verður kannski við­loð­andi við sam­fé­lagið þegar að þessu verður lok­ið.“

Líkt og Þórólfur greindi frá í við­tali við Kjarn­ann nýverið er verið að skoða hvaða tak­mark­anir verði settar á komur ferða­manna hingað til lands og ferða­lög Ís­lend­inga erlendis til að forða því að smit ber­ist hingað aft­ur.

Þórólf­ur ít­rek­aði á fund­inum að hann bindur ekki vonir við að bólu­efni muni leysa ­vand­ann í far­aldri þess­arar veiru. Hann telur langt í að það kom­ist í almenna ­notk­un. „Við verðum að reiða okkur á þessar aðgerðir sem við höfum verið að nota hingað til og þær munu gegna lyk­il­hlut­verki í að koma okkur út úr þessum far­aldri.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent