Víðir boðar samfélagslegan sáttmála

Hvernig viljum við haga okkur í samfélaginu næstu vikur og mánuði? Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn varpar fram þeirri hugmynd að íslenska þjóðin geri með sér sáttmála um „eitthvað sem við viljum öll halda í heiðri“.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Auglýsing

Nú stytt­ist í 4. maí þegar fyrstu aflétt­ingar á aðgerðum sem hafa verið íþyngj­andi fyrir marga hefj­ast. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra segir að því sé tíma­bært að velta þeirri hug­mynd fyr­ir­ ­sér að öll þjóðin geri með sér sam­fé­lags­legan sátt­mála, sátt­mála um hvernig við ætlum að haga okkur næstu vikur og mán­uði.

Sátt­mál­inn yrði þá „eitt­hvað sem við viljum öll halda í heiðri, vera öll saman í, allt sam­fé­lag­ið,“ sagði hann á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Nefndi hann sem dæmi að með sátt­mál­an­um ­gæti fólk lofað því að sinna hand­þvotti vel, sótt­hreinsa og spritta hend­urn­ar og sam­eig­in­lega snertifleti, vernda áfram við­kvæma hópa, gefa kost á tveggja ­metra fjar­lægð, halda áfram sýna­tök­um, að beita sótt­kví og ein­angra smit­aða – og veita áfram góða heil­brigð­is­þjón­ustu. Nefndi hann líka að upp­lýs­inga­miðl­un yrði áfram góð og að fólk not­aði fréttir frá traust­um, rit­stýrðum frétta­miðl­u­m, til að afla sér upp­lýs­inga.

Þá sé mik­il­vægt að við sýnum þeim skiln­ing sem mis­stíga sig í aðgerð­un­um. „Við munum öll mis­stíga okk­ur,“ sagði Víð­ir. „Við skul­u­m ­leið­beina þeim sem það gera og á kurt­eis­legan hátt. Og vera góð við hvort ann­að.“

Auglýsing

Sagði Víðir að hann teldi slíkan sam­fé­lags­legan sátt­mála ­mik­il­vægan sam­hliða því að aðgerðum verður aflétt í skrefum frá 4. maí. „Eina ­leiðin er að vinna þetta sam­an.“

Minnti hann á að áhrif far­ald­urs­ins væru um allan heim og að að­gerðir ann­arra hafi áhrif á okk­ur. „Þetta er sam­fé­lags­legt verk­efni allra ­sam­fé­laga, verk­efni alls mann­kyns. Við erum öll í þessu sam­an. Við þurfum lík­a að passa okkur á því í þess­ari vinnu að við skiljum engan eftir útund­an.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent