Sóttvarnalæknir segir að aflétting takmarkana í skrefum, meðal annars með opnun sundlauga, virðist ekki hafa leitt til aukningar á sjúkdómstilfellum. Þriðja skrefið í afléttingu verður tekið á mánudag, 25. maí. Það er stórt miðað við fyrri skref og fyrir utan að fjöldi þeirra sem koma má saman fer úr 50 í 200 og opna megi líkamsræktarstöðvar, skemmtistaði og krár að nýju, þá verða breytingar á tveggja metra reglunni.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis sem liggur til grundvallar breytingum á samkomubanni er auglýstar voru í dag, segir að hugmyndin sé að sett verði regla sem er svipuð reglu er varðar aðgengi fatlaðs fólks að ýmissi þjónustu. Sem sagt, að gert verði ráð fyrir að einstaklingar, sérstaklega þeir sem viðkvæmir ery, þurfi meira pláss en aðrir og að einnig geti reglan verið val fólks. „Þannig má fólk sitja eða standa þétt en bjóða þarf þeim sem það vilja að halda tveggja metra fjarlægð,“ stendur í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.
Eftir að þriðja skrefið verður tekið eftir helgi er fólk þó áfram hvatt til þess að viðhalda tveggja metra fjarlægð í samskiptum við aðra „eftir því sem aðstæður leyfa“ en frá og með mánudeginum verður framkvæmd reglurnar hins vegar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.
Í auglýsingunni segir að í rýmum sem gert er ráð fyrir að almenningur eigi aðgang að, hvort sem er án skilyrða eða að uppfylltum skilyrðum, svo sem með greiðslu aðgangsgjalds eða vegna vinnusambands, „skal leitast við að bjóða einstaklingum að halda tveggja metra fjarlægð frá öðrum eins og kostur er“.
Svo segir: „Þar sem veitt er lögbundin þjónusta eða almenningur á ekki kost á öðru en að mæta skal vera unnt að tryggja þeim sem það kjósa að halda tveggja metra fjarlægð frá öðrum.“ Undir rými í þessum skilningi falla meðal annars: Verslanir, veitingastaðir, sund- og baðstaðir, líkamsræktarstöðvar, íþróttamannvirki, heilbrigðisstofnanir, vinnustaðir, almenningssamgöngur, leik- og bíóhús og móttökur stofnana og fyrirtækja.
Frá upphafi COVID-19 faraldursins hér á landi hafa greinst smit hjá rúmlega 1.800 einstaklingum. Undanfarið hefur nýsmitum fækkað verulega og hafa aðeins fimm einstaklingar greinst það sem af er maímánuði.
Takmarkanir á samkomum vegna yfirstandandi faraldurs COVID-19 voru fyrst settar 13. mars og síðan hertar þann 24. sama mánaðar. Samkvæmt auglýsingu frá 24. mars áttu takmarkanirnar að standa til 12. apríl. Sóttvarnalæknir sendi minnisblað til ráðherra 1. apríl þar sem lagt var til að takmörkunum á samkomum yrði framhaldið til 4. maí og voru þær tillögur staðfestar.
Í dag hafa 1.803 einstaklingar greinst með COVID-19 hér á landi. Af þeim hafa 115 lagst inn á sjúkrahús, 30 á gjörgæsludeild og 18 hafa þurft á aðstoð öndunarvéla að halda. Tíu hafa látist. Nýsmitum hefur hins vegar fækkað verulega á undanförnum dögum og hafa einungis fimm einstaklingar greinst sem af er maí mánuði.
Fyrsta aflétting á samkomutakmörkunum var gerð 4 maí sem ekki virðist hafa leitt til aukningar á sjúkdómstilfellum, segir í minnisblaði sóttvarnalæknis. Önnur aflétting var gerð 18. maí en þá voru sundlaugar opnaðar með 50 prósent leyfilegum hámarksfjölda gesta og næsta aflétting takmarkana er svo fyrirhuguð 25. maí.