Sláandi niðurstöður könnunar kalli á afgerandi viðbrögð af hálfu forseta Alþingis

Þingflokksformaður Viðreisnar segir að sú staða sem uppi er á Alþingi sé ekki eingöngu óboðleg þeim einstaklingum sem um ræðir, heldur sverti ímynd Alþingis og hafi hamlandi áhrif á getu og vilja fólks til þess að starfa á vettvangi stjórnmálanna.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.
Auglýsing

„Nið­ur­stöður könn­unar á starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menn­ingu Alþingis eru slá­andi og kalla á afger­andi við­brögð af hálfu for­seta Alþing­is.“ Þetta kemur fram í bréfi þing­flokks­for­manns Við­reisn­ar, Hönnu Katrínar Frið­riks­son, til Stein­gríms J. Sig­fús­sonar for­seta Alþingis sem sent var til hans í dag.

Í könn­un­inni sem fram­­kvæmd var fyrr á árinu kemur fram að fimmtán þing­­menn hafi orðið fyrir ein­elti í starfi eða í tengslum við starf sitt, eða 35,7 pró­­sent þeirra 42 þing­­manna sem tóku afstöðu til spurn­ing­­ar­inn­ar.

Alls 20 pró­­sent af þeim 153 starfs­­mönnum á Alþingi sem svör­uðu könn­un­inni sögð­ust hafa orðið fyrir ein­elti í starfi sínu og 18,4 pró­­sent þátt­tak­enda sögðu að þeir hefðu ein­hvern­ tím­ann orðið fyrir kyn­bund­inni áreitni á starfs­­tíma sínum á Alþingi eða í tengslum við starf sitt þar.

Auglýsing

Aðför að lýð­ræð­inu

Í bréfi Hönnu Katrínar segir að könn­unin sýni að óásætt­an­legur fjöldi þing­manna, starfs­fólks Alþingis og starfs­fólks þing­flokka hafi upp­lifað ein­elti og kyn­ferð­is­legt eða kyn­bundið áreiti í starfi sínu. Þessi staða sé ekki ein­göngu óboð­leg þeim ein­stak­lingum sem um ræð­ir, heldur sverti ímynd Alþingis og hafi hamlandi áhrif á getu og vilja fólks til þess að starfa á vett­vangi stjórn­mál­anna. Það síð­ast­nefnda sé alvar­leg aðför að lýð­ræð­inu.

„Fram hefur komið að jafn­réttis­nefnd Alþingis er ætlað að ræða eft­ir­fylgni könn­un­ar­inn­ar. Af hálfu Við­reisnar vil ég leggja áherslu á að þeirri vinnu sé hraðað eins og kostur er. Jafn­framt sé þess gætt að eiga sam­starf við þá flokka sem sæti eiga á Alþingi um nauð­syn­legar breyt­ingar á vinnu­að­stæðum og vinnu­staða­menn­ingu. End­ur­skoðun á þing­skap­ar­lögum hlýtur að vera undir í þeirri vinnu.

Til við­bótar við það að bæta starfs­um­hverfi á Alþingi til fram­búð­ar, er mik­il­vægt að koma strax til móts við þá sem nú upp­lifa ein­elti eða áreiti í starfi sínu. Af því til­efni má nefna að Við­reisn samdi fyrir ári við Hag­vang um að taka í notkun þjón­ustu Sið­ferð­is­gátt­ar­innar fyrir skráða félaga og starfs­fólk Við­reisn­ar. Sið­ferð­is­gáttin er vett­vangur til að koma á fram­færi kvört­unum eða ábend­ingum um ein­elti, áreiti, ofbeldi eða van­líðan í starfi til óháðs aðila sem kemur þeim í réttan far­veg. Reynslan af þessum stuðn­ingi er jákvæð og ekki úr vegi að jafn­réttis­nefnd Alþingis skoði svip­aða nálg­un,“ segir í bréf­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent