Landinn óður í útivist

Uppselt er í margar ferðir Ferðafélags Íslands og félagið hefur þurft að bæta við ferðum. Níu af hverjum tíu ætla að ferðast innanlands í sumar samkvæmt könnun Ferðamálastofu.

Laugavegurinn er ein allra vinsælasta gönguleið landsins en gengið er frá Landmannalaugum.
Laugavegurinn er ein allra vinsælasta gönguleið landsins en gengið er frá Landmannalaugum.
Auglýsing

Lands­menn virð­ast í auknum mæli sækja í úti­vist þetta sum­ar­ið. Spreng­ing hefur orðið í bók­unum á ferðum hjá Ferða­fé­lagi Íslands og sam­kvæmt nýlegri könnun Ferða­mála­stofu ætla níu af hverjum tíu að ferð­ast inn­an­lands í sum­ar.

Starfs­fólk Ferða­fé­lags Íslands finnur vel fyrir auknum áhuga á ferðum félags­ins í sum­ar. Sést það meðal ann­ars í því að félags­mönnum hefur fjölgað um rúm­lega 300 á síð­ustu vik­um. Fjöldi félaga nálg­ast 10.000 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þá hefur selst upp í margar ferðir félags­ins og það þurft að bæta við ferð­um.

„Þegar ljóst var hversu mik­ill áhugi var á ferðum félags­ins um miðjan apr­íl, þá kom ferða­nefndin aftur saman og bætt var við ferðum og verk­efn­um. Segja má að við­bót nýrra ferða og bók­anir nemi þegar um 30% aukn­ingu og eigum við þó enn eftir að bæta við ferðum og munum gera það á næstu tveimur vik­um.“ segir Páll Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Ferða­fé­lags­ins, í sam­tali við Kjarn­ann. 

„Í ljósi þessa mikla áhuga þá höfum við bætt við starfs­fólki í sum­ar­störf í afgreiðslu sem er auð­vitað mjög ánægju­legt miðað við hvað staðan er víða þung í atvinnu­líf­in­u,“ bætir hann við.

Auglýsing

Hall­dór Hreins­son eig­andi Fjalla­kof­ans hefur ekki farið var­hluta af auknum áhuga land­ans á úti­vist. „Frá nið­ur­fell­ingu sam­komu­banns er þetta líkt og skrúfað hafi verið frá krana,“ segir Hall­dór um aðsókn­ina í úti­vist­ar­vör­ur.

Að hans mati er ljóst að sam­komu­bann og aukin inni­vera sem henni fylgdi hafi aukið áhuga fólks á úti­vist. „Við erum að taka á móti mikið af fjöl­skyldum sem eru að stíga upp úr sóf­anum og ætla að ferð­ast inn­an­lands af því að þau kom­ast ekki til sól­ar­landa. Þetta er jákvæð þróun í þeirri merk­ingu að við­kom­andi ein­stak­lingar og fjöl­skyldur kynn­ast land­inu og hvort öðru betur í svona ferða­lög­um.“

Hall­dór bendir á að mesta aukn­ingin sé þó í sölu fjalla­skíða. „Þetta er búið að fjór­fald­ast núna miðað við eðli­legt árferði, bara á síð­ustu mán­uðum og maí er búinn að vera klikk­að­ur,” segir Hall­dór sem telur margt fólk vera að stíga sín fyrstu skref í þeirri teg­und úti­vist­ar.

Þeir Páll og Hall­dór eru báðir sann­færðir um að fækkun erlendra ferða­manna muni auka áhuga Íslend­inga fyrir því að heim­sækja þá ferða­manna­staði sem almennt eru vin­sæl­ast­ir. „Vegna mik­ils fjölda ferða­manna á þekktum ferða­manna­stöðum und­an­farin ár höfum við Íslend­ingar víða hörfað af þeim svæðum og leitað ann­að. Nú er því kær­komið tæki­færi að heim­sækja þessa staði á ný,” segir Páll.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent