Farið fram á að Bjarni mæti fyrir nefnd vegna afskipta ráðuneytis af ráðningu Þorvalds

Nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vill að fjármála- og efnahagsráðherra mæti fyrir nefndina til að útskýra afskipti ráðuneytis hans að ráðningu Þorvaldar Gylfasonar sem ritstjóra norræns fræðirits.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Guð­mundur Andri Thors­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, hefur farið fram á að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, komi fyrir nefnd­ina og útskýri afskipti ráðu­neytis hans af ráðn­ingu Þor­valdar Gylfa­sonar sem rit­stjóra nor­ræns fræði­tíma­rits um hag­fræð­i. 

Guð­mundur Andri greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Face­book. 

Kjarn­inn greindi frá því í morgun að starfs­­maður fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­­­mála­ráðu­­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­­nefnd­­ar­innar að ráðu­­neytið gæti ekki stutt að Þor­­vald­ur, sem er hag­fræð­i­­pró­­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­­stjóri nor­ræna fræða­­tíma­­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew.

Auglýsing
Ástæðan sem ráðu­­neytið gaf upp var sú að Þor­­valdur hefði verið og væri enn, sam­­kvæmt bestu vit­­neskju ráðu­­neyt­is­ins, for­­maður stjórn­­­mála­afls. Hann væri því of póli­­tískt virkur til þess að ráðu­­neytið gæti stutt að hann yrði rit­­stjóri fræða­­tíma­­rits­ins. 

Þarna fór starfs­­maður ráðu­­neyt­is­ins með rang­­færsl­ur. Þor­valdur var vissu­­lega á meðal stofn­enda Lýð­ræð­is­vakt­­ar­innar árið 2013 og leiddi hana til Alþing­is­­kosn­­inga þar sem flokk­­ur­inn hlaut 2,46 pró­­sent atkvæða, en hætti síðan í stjórn flokks­ins um haustið 2013 og hefur ekki gegnt trún­­að­­ar­­störfum í stjórn­­­málum síð­­­an.

Kjarn­inn greindi frá því í kvöld að ­ráðu­­neytið hefði stuðst við rangar upp­­lýs­ing­­ar, sem það segir að hafi verið að finna á Wikipedi­a-­­síðu um Þor­­vald, þegar það kom ofan­greindum boðum til sér­­fræð­inga í starfs­hópi nor­rænu fjár­­­mála­ráðu­­neyt­anna.

Sam­­kvæmt svari ráðu­­neyt­is­ins var ákvörð­unin um að bera fram þessi sjón­­­ar­mið um Þor­­vald, að hann væri of póli­­tískt virkur til að njóta stuðn­­ings Íslands í starf­ið, „ekki borin undir ráð­herra né aðra á skrif­­stofu yfir­­­stjórnar ráðu­­neyt­is­ins.“

Ekki fékkst skýrt svar við því hvort sú ákvörðun að hafna Þor­­valdi hefði verið tekin af starfs­­manni ráðu­­neyt­is­ins sem var í sam­­skiptum við nor­ræna stýri­hóp­inn fyrir Íslands hönd eða ein­hverjum öðrum innan ráðu­­neyt­is­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent