Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að þegar hann hafi heyrt stungið upp á því að Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, yrði gerður að ritstjóra ritsins Nordic Economic Policy Review þá hefði hann verið afar skýr um að hann kæmi ekki til greina. Hann telji enda að „sýn og áherslur Þorvaldar Gylfasonar í efnahagsmálum geti engan veginn stutt við stefnumótun ráðuneytis sem ég stýri.“
Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu sem Bjarni birti á Facebook.
Þar segir Bjarni enn fremur að starfsmenn ráðuneyta starfi í umboði og á ábyrgð ráðherra. „Þótt ekki séu öll samskipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu tilviki endurspeglast vilji minn um að tilnefna hvorki né samþykkja Þorvald Gylfason til þessara starfa. Reyndar hafði mér aldrei dottið í hug sá möguleiki og enginn nefnt hann við mig.“Kjarninn greindi frá því fyrr í vikunni að starfsmaður fjármála- og efnahagsráðuneytisins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í norrænum fjármálaráðuneytum og til Norrænu ráðherranefndarinnar að ráðuneytið gæti ekki stutt að Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, yrði ráðinn sem ritstjóri norræna fræðatímaritsins Nordic Economic Policy Review.
Ástæðan sem ráðuneytið gaf upp var sú að Þorvaldur hefði verið og væri enn, samkvæmt bestu vitneskju ráðuneytisins, formaður stjórnmálaafls. Hann væri því of pólitískt virkur til þess að ráðuneytið gæti stutt að hann yrði ritstjóri fræðatímaritsins.
Segir nafngreiningu starfsmanns ósmekklega
Í gær nafngreindu nokkrir fjölmiðlar starfsmann ráðuneytisins sem sendi póstinn þar sem afstaða íslenska fjármála- og efnahagsráðuneytisins var komið á framfæri. Bjarni segir í stöðuuppfærsluni að starfsmaðurinn hafi verið settur í forgrunn og nafngreindur á mjög ósmekklegan hátt vegna ákvörðunar sem var ekki á nokkurn hátt hans.
Hann segir að um ákvörðunina sé fjallað í starfshópi sérfræðinga í fjármálaráðuneytum Norðurlandanna. „Starfið er ekki auglýst, heldur fer fram umræða í hópnum um þá einstaklinga sem hvert ráðuneyti leggur til. Engar sérstakar hæfniskröfur eru gerðar aðrar en þær að viðkomandi njóti trausts allra sem að valinu koma. Fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins lagði fyrir mína hönd til konu sem hefur mikla reynslu af störfum, rannsóknum og skrifum á þessu fræðasviði. Til vara voru tvö önnur. Hvorugt þeirra var Þorvaldur Gylfason.“
Bjarni leggur áherslu á að ákvörðun um ráðningu sé tekin samhljóða og að krafist sé samsinnis allra fyrir ráðningu. „Ekkert slíkt samþykki lá fyrir þann 1. nóvember sl., þegar Þorvaldi á að hafa verið boðin vinnan, sem var áður en nafn hans hafði nokkurn tímann verið nefnt við fulltrúa fjármálaráðuneytisins. Reyndar er það svo að þegar ég heyrði af þeirri uppástungu var ég afar skýr um að hann kæmi ekki til greina, enda tel ég að sýn og áherslur Þorvaldar Gylfasonar í efnahagsmálum geti engan veginn stutt við stefnumótun ráðuneytis sem ég stýri.“
Sjálfsagt að mæta fyrir þingnefnd
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hefur farið fram á að Bjarni mæti fyrir nefndina og rökstyðji þar af hverju Þorvaldur hafi ekki fengið starfið. Bjarni segir það meira en sjálfsagt að mæta og rekja sín sjónarmið nánar. „Þá gefst mögulega tækifæri til að fara nánar ofan í saumana á því hvers vegna ég tel Þorvald Gylfason tæplega eiga samleið með mínu ráðuneyti í þessu verkefni eða yfirhöfuð um önnur stefnumarkandi mál. Það verður þá í fyrsta sinn sem ég ræði um mögulegt samstarf við Þorvald Gylfason en ekki þarf að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að finna út hvaða hug Þorvaldur hefur borið til þeirra ríkisstjórna sem ég hef setið í undanfarin ár. Ef þörf krefur skal farið betur yfir það fyrir þingnefnd.
Ég mun þá einnig kalla eftir því hvernig fulltrúi Samfylkingarinnar telur það óeðlileg afskipti af ráðningu ritstjóra Nordic Economic Policy Review að fjármálaráðuneytið samþykki ekki umyrðalaust hugmyndina um Þorvald Gylfason. Ekki að ég efist um að hæfnisnefnd Samfylkingarinnar hafi borið Þorvald saman við aðra tilnefnda, en dugar það eitt og sér? Og hvers eiga aðrir þeir sem óformleg tillaga var gerð um að gjalda?“
Ísland ekki eina ríkið sem ekki féllst á tillöguna
Bjarni segir að lokum að þegar til kastanna hafi komið hafi Ísland ekki verið eina ríkið sem ekki féllst á tillögu um ráðningu Þorvaldar Gylfasonar.
Um það hefðu starfsmenn norrænu ráðherranefndarinnar upplýst Þorvald. „En telji hann sig eiga eitthvað inni vegna óuppfylltra væntinga þarf hann að reka þau mál við þann sem sendi honum þetta meinta atvinnutilboð, - í fullkomnu heimildar- og umboðsleysi. Mögulega mun hann njóta fulltingis einhverra þingmanna Samfylkingar, jafnvel Pírata, á þeirri leið. Spurning er bara hvort það væru ekki óeðlileg afskipti af þeirra hálfu af ráðningu í starf sem aldrei hefur verið auglýst.“
Það er sennilega til vitnis um það að allt er að komast í sitt fyrra horf, þegar atvinnumál hagfræðings og fyrrverandi...
Posted by Bjarni Benediktsson on Thursday, June 11, 2020