Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að ráðning ritstjóra tímaritsins Nordic Economic Policy Review, eins og svo margar fleiri sem heyra undir Norrænu ráðherranefndina, færi þannig fram að löndin kæmu sér saman um einstakling í embættin og væru störfin ekki endilega auglýst – eins og við átti í þessu tiltekna tilfelli þar sem staðan var ekki auglýst.
Kjarninn greindi frá því í vikunni að starfsmaður fjármála- og efnahagsráðuneytisins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í norrænum fjármálaráðuneytum og til Norrænu ráðherranefndarinnar að ráðuneytið gæti ekki stutt að Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, yrði ráðinn sem ritstjóri norræna fræðatímaritsins Nordic Economic Policy Review.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, spurði forsætisráðherrann út í málið í óundirbúnum fyrirspurnatíma í dag. „Í ámátlegri tilraun til að verja afskipti sín í ráðningu Þorsteins Gylfasonar sem ritstjóra norræns fræðatímarits um hagfræði sem segir fjármálamálaráðherra: „Þetta er ekki óháð fræðirit heldur er því ætlað að styðja við stefnumótun norrænu ríkjanna í efnahagsmálum.“ Þessi fullyrðing er röng og ekki í samræmi við markmið blaðsins sem snýr að því að auka aðgengi að nýjum upplýsingum og rannsóknum af efnahagsmálum á Norðurlöndunum með birtingu ritrýnda fræðigreina. Í svari sínu viðurkennir ráðherra líka grímulaust að honum þyki ekkert óeðlilegt við að standa í vegi fyrir frama fræðimanns með þessum hætti af því að samfélagsþátttaka og pólitískar skoðanir mannsins eru honum ekki þóknanlegar. Fulltrúum hinna Norðurlandanna blöskraði eðlilega, enda vinnubrögðin þar vonandi betri,“ sagði hann.
Stórskaðlegt fyrir samfélagið
Þá sagðist Logi ekki hirði um að telja upp þá flokksgæðinga sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði raðað á jötuna í gegnum árin. „Oft beinlínis vegna skoðana sinna og þó að vanhæfið hafi beinlínis lekið af þeim. Það er alvarlegt og grefur undan framgangi þeirra sem áttu störfin frekar skilið. Vont fyrir þá, stórskaðlegt fyrir samfélagið. En að beita sér gegn hæfum einstaklingi eins og gert var með þessum hætti er beinlínis óhuggulegt.“
Hann sagði að þótt forsætisráðherra bæri ekki beint ábyrgð á fjármálaráðherra hefði hún verkstjórnarvald, auk þess sem flokkur hennar bæri beina ábyrgð á setu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Þá sagði hann jafnframt að Katrín hefði ítrekað þurft að kyngja hneykslismálum og hagsmunaárekstrum samstarfsfélögum í Sjálfstæðisflokknum og horft fram hjá þeim eldri – og gefið þeim lögmæti.
Logi spurði hana hvort hún myndi „kyngja þessu hneykslismáli“ eða hvort það myndi hafa einhverjar afleiðingar.
Sérstaklega rætt um mikilvægi þess að ritið styddi við stefnumótun
Katrín svaraði og sagði að hún þekkti ágætlega til norræns samstarfs þar sem hún hefði gegnt embætti norræns samstarfsráðherra á árum áður og að hún hefði kynnt sér það hvernig val færi fram á ritstjóra þess tímarits sem Logi vísaði til, Nordic Economic Policy Review. „Þetta er rit sem er gefið út af Norrænu ráðherranefndinni. Það er fjármagnað af fjármálaráðuneytunum Norðurlandanna og það er sú ráðherranefnd sem fer með útgáfu þessa rits.
Það er svo, af því að háttvirtur þingmaður nefnir hér að þessu riti sé ekki ætlað að styðja við stefnumótun ráðuneytanna þá kemur það eigi að síður fram í fundargerð fundarstýrihóps sem fer með umsjón þessara mála að það var sérstaklega rætt um að mikilvægt væri að þetta rit styddi við stefnumótun og greinarnar sem í því birtust, svo vitnað sé til á ensku með leyfi forseta, væru policy-oriented.“
Fjármálaráðuneyti Íslands vildi sérstaklega horfa til þess að kona væri valin
„Þegar kom að vali á núverandi ritstjóra á þessum fundi sem ég vitna til var óskað eftir tillögum frá fjármálaráðuneytum Norðurlandanna og samkvæmt mínum upplýsingum vildi fjármálaráðuneyti Íslands sérstaklega horfa til þess að það væri valin kona í þetta embætti. Það kemur fram í fundargerð að stýrihópurinn hefði eingöngu rætt karla og lagt var til að einhver myndi gera atlögu að því að hugsa upp kvenkyns kandídata. Og mér skilst að slík tillaga hafi farið frá íslenska fjármálaráðuneytinu í þennan stýrihóp,“ sagði Katrín.
Hún sagði að stóra málið í þessu væri „ráðningarferlið sem um ræðir snýst um að löndin komi sér saman og þar geta allir fjármálaráðherrar Norðurlandanna haft skoðun á því hver er skipaður“.
Er vegið að akademísku frelsi
Logi kom aftur í pontu og sagði að honum heyrðist sem forsætisráðherra gerði ekki athugasemdir við þetta „inngrip fjármálaráðherra, þó svo að viðkomandi fræðimaður hefði fengið boð um vinnuna. Nú hefur hæstvirtur forsætisráðherra starfað í akademíunni og þess vegna væri ekki úr vegi að spyrja hvort henni finnist ekki vegið að akademísku frelsi með þeim skýringum sem hafa verið gefnar á fyrri stigum,“ sagði hann.
„Það er einfaldlega ekki hægt að við tínum bara svona fallegustu berin af trjánum og sýnum þjóðinni þau og fullyrðum að hér sé allt í lagi þegar bolurinn sjálfur er fúinn. Og hæstvirtur forsætisráðherra hefur skipað merkilega nefnd um starfshóps til eflingar trausts í stjórnmálum og stjórnsýslunni sem skilaði ágætri skýrslu og þar segir meðal annars: „Stjórnvöld eru því vanbúin að bregðast við og taka á og læra af gagnrýni.“.“ Logi sagðist óttast að það væri uppi á teningnum núna.
Tekur ekki afstöðu til þess hver var ráðinn
Katrín svaraði og sagði að líklegast væri ofsagt að hún hefði starfað við akademíuna þar sem hún hefði eingöngu verið stundakennari á þeim vettvangi. „En það sem ég var að fara yfir hér, þó að háttvirtur þingmaður kjósi að bregðast við því með þeim hætti sem hann gerir, er það ferli sem er viðhaft þegar ráðið er í stöður á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar eins og til dæmis þessi tiltekna staða. Og þá má spyrja sig þegar háttvirtur þingmaður talar hér um inngrip hvort það sé inngrip þegar ráðherra sem starfar í viðkomandi ráðherraráði, sem ég hef vissulega gert sjálf sem samstarfsráðherra Norðurlandi og sem menntamálaráðherra og haft aðkomu að slíkum ákvörðunum, hvort það sé inngrip ef ráðherra eða ráðuneyti hans hefur slíka skoðun – þegar gert er ráð fyrir því í ferlinu. Það er einfaldlega það sem ég er að benda á.“
Hún sagðist ekki taka afstöðu til þess hver hefði átt að vera ráðinn ritstjóri þessa tímarits, enda heyrði það ekki undir hennar verksvið. „Ég er einfaldlega að benda háttvirtum þingmanni á að ferlið gerir ráð fyrir því að aðildarríki Norrænu ráðherranefndarinnar komi sér saman um slíka skipan og slíkt ferli þekki ég vel frá mínum fyrri embættisskyldum sem samstarfsráðherra.“