Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, mun ekki styðja Jón Þór Ólafsson, þingmann Pírata, sem formann nefndarinnar. „Hugmyndir þeirra eru með þeim hætti að þau eru ekki réttu aðilarnir til að leiða þetta starf. Ég mun ekki styðja hann til formennsku,“ segir Brynjar við Morgunblaðið í dag.
Jón Þór mun taka við formennsku fyrir vikulok eftir að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, samflokkskona hans, sagði henni af sér á mánudag. Í ræðu sinni vegna þessa sagði hún að tilraunir minnihlutans í nefndinni til að sinna því eftirlitshlutverki sem hún á að sinna hafi orðið „meirihlutanum tilefni til valdníðslu og linnulausra árása.“
Bókaði á fyrsta fundi að hann treysti ekki Þórhildi Sunnu
Brynjar segir að hann hafi ekki treyst Þórhildi Sunnu fyrir formennsku í nefndinni frá því að hún hafi verið kosið, og frá þeim tíma hafi vantraust hans einungis aukist. Samkomulag er á milli meirihluta og minnihluta á Alþingi að minnihlutinn stýri þremur fastanefndum Alþingis, þar á meðal stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Sagði formanninn vilja pólitískan rannsóknarrétt
Í síðustu viku, nánar tiltekið 10. júní, lagði svo Óli Björn Kárason, samflokksmaður Brynjars, fram bókun í nefndinni. Þar sagði hann að löngun Þórhildar Sunnu til að breyta nefndinni í pólitískan rannsóknarrétt virtist vera mikil. „Markmiðið er að nýta trúnaðar- og valdastöðu til að koma höggi á pólitíska mótherja. Tilgangurinn helgar meðalið,“ sagði í bókun Óla Björns.
Tilefnið var það sem hann kallaði „ásakanir og dylgjur formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem komu fram í bókun á fundi 5. júní sl. og endurteknar efnislega í fjölmiðlum og þingsal í garð sex nefndarmanna“.
Óli Björn sagði þær ásakanir alvarlegar og að ekki væri hægt að sitja undir þeim. „Brigsl um vanvirðingu gagnvart réttindum minnihluta, leyndarhyggju og lítilsvirðingu gagnvart hlutverki nefndarinnar sem veiki Alþingi, eru án innistæðu og tilefnislaus.“
Telur meirihlutann persónugera starfið í henni
Í bókun Þorhildar Sunnu frá 5. júní var fjallað um ákvörðun meirihluta nefndarinnar um að hætta frumkvæðisathugun á hæfi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vegna stöðu hans gagnvart Samherja. Þar sagði meðal annars: „Afstaða meiri hlutans ber merki um vanvirðingu fyrir réttindum og hlutverki minni hlutans á þingi, ýtir undir grunsemdir um samtryggingu og leyndarhyggju, lítilsvirðir sérstakt eftirlitshlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og er til þess fallin að veikja Alþingi og traust almennings á því. Minni hlutinn harmar þessa afstöðu.“
Í ræðu sinni á mánudag, þegar hún sagði af sér formennsku, sagði Þórhildur Sunna skýrasta dæmið vera hvernig hefði verið staðið í vegi fyrir því að frumkvæðisathugun fari fram á hæfi Kristjáns Þórs. „Með þessu er meirihlutinn að setja hættulegt fordæmi, veikja eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu.“
Hún sagði enn fremur að meirihlutinn persónugerði starf nefndarinnar til að ná markmiðum sínum. „Til þess að réttlæta þessa aðför sína kýs meirihluti nefndarinnar að draga persónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóraböggul.“
Sú aðferðarfræði sem hún upplifði að beitt væri í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, og feli að hennar mati í sér að skjóta sendiboðann, sé „þaulreynd þöggunar- og kúgunartaktík. Ég mótmæli þessari aðför, mér misbýður þetta leikrit og ætla ekki að taka þátt í því lengur. Meirihlutinn verður að finna sér aðrar átyllur til þess til að réttlæta aðför sína að eftirlitshlutverki nefndarinnar og þingsins. Formennsku minni í þessari nefnd er hér með lokið.“