Alþýðusamband Íslands kallar eftir ítarlegri rannsókn á aðdraganda og orsökum brunans á Bræðraborgarstíg sem átti sér stað í gær. Samkvæmt fréttum eru 73 einstaklingar með skráð lögheimili í húsinu og langstærstur hluti þeirra er erlent fólk. Það leiðir líkum að því að um sé að ræða erlent verkafólk sem atvinnurekandinn hefur útvegað húsnæði.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu ASÍ vegna brunans en staðfest hefur verið að þrír einstaklingar hafi látið lífið í brunanum á Bræðraborgarstíg 1 og tveir eru nú á gjörgæsludeild Landspítalans. „Aðstandendum látinna eru vottaðar djúpar samúðarkveðjur,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá segir að verkalýðshreyfingin hafi um langt skeið kallað eftir samhæfðum aðgerðum stjórnvalda til að tryggja aðbúnað erlends verkafólks á Íslandi, sporna gegn mansali og koma í veg fyrir félagsleg undirboð. Enn skorti á að staðið sé við fyrirheit Lífskjarasamninganna þar að lútandi. Sérstaklega hafi verkalýðshreyfingin farið fram með kröfur til að tryggja aðbúnað verkafólks sem dvelur í húsnæði á vegum atvinnurekanda og að atvinnurekendur séu kallaðir til ábyrgðar ef húsnæði er óviðunandi. Vitað sé um fleiri tilfelli þar sem grunur leikur á að fjöldi fólks hafist við í óviðunandi húsnæði.
„Hugur okkar er nú fyrst og fremst hjá því fólki sem var í húsinu þegar eldurinn braust út og aðstandendum þess. Við köllum eftir því að málið sé rannsakað af fullum þunga. Enn er óljóst á hvers vegum fólkið dvaldi í húsinu og hvers vegna svo margt fólk var þar með skráð lögheimili. Við vitum að ítrekað hefur verið kallað eftir að þetta húsnæði – og annað sambærilegt – væri tekið til skoðunar vegna ástands þess. Bruninn á Bræðraborgarstíg kallar á ítarlega og fumlausa rannsókn og það er krafa ASÍ að þar sé hverjum einasta steini velt við. Svona má aldrei gerast aftur,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, í tilkynningunni.