Stjórn VR, sem jafnframt á sæti í fulltrúaráði Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, beinir þeim tilmælum til þeirra stjórnarmanna sem VR skipar í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá VR.
Fram kom í fréttum í dag að stjórnendur Icelandair hefðu ákveðið að hætta viðræðum við Flugfreyjufélag Íslands og leita eftir samningum við annan samningsaðila á hinum íslenska vinnumarkaði um framtíðarkjör öryggis- og þjónustuliða hjá félaginu. Öllum flugfreyjum og flugþjónum verður sagt upp og þess í stað eiga flugmenn að taka að sér störf öryggisliða um borð tímabundið.
Í tilkynningu VR segir að fjölda félagsmanna þeirra, sem margir hverjir hafa starfað áratugum saman hjá félaginu, hafi verið sagt upp störfum á meðan félagið stundi félagsleg undirboð með úthýsingu starfa í löndum þar sem réttindi séu fótum troðin.
Stjórn VR getur ekki sætt sig við það að eftirlaunasjóðir launafólks séu notaðir til fjárfestinga í fyrirtækjum sem hvetja til félagslegra undirboða. Það stríði gegn öllum þeim gildum sem verkalýðshreyfingin stendur fyrir. Lífeyrissjóðirnir hafi einnig sett sér alþjóðleg siðferðisleg viðmið í fjárfestingastefnum sínum og beri þeim að fylgja því eftir.
Hvernig geta lífeyrissjóðirnir leyft þessu að viðgangast án þess að aðhafast nokkuð?
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í stöðuuppfærslu á Facebook að það sé með hreinum ólíkindum að stjórn og stjórnendur Icelandair fái að stýra félaginu óáreittir í krafti eftirlaunasjóða almennings.
Lesa
Ber þar að nefna hvernig haldið hefur verið á málum gagnvart Boeing, breytingar á leiðakerfum, kaup félagsins á ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja, viðbrögð við samkeppni á einum mesta uppgangstíma flugsögunnar, klúðrið og spillingin í kringum Lindarvatn sem byggir hótelið á Landsímareitnum og svo ömurlega framkomu stjórnenda og yfirlýsingar í garð starfsfólks,“ skrifar hann.
Hann segir að þó hægt sé að telja upp mun fleiri atriði megi álykta sem svo að lykilfjárfestar vilji vart snerta á félaginu með priki á meðan sömu stjórn og stjórnendum sé ætlað að leiða þetta mikilvæga fyrirtæki í gegnum þann ólgusjó sem nú ríkir.
Ragnar Þór spyr hvernig í veröldinni hluthafar, sem í þessu tilfelli eru lífeyrissjóðirnir stærstir, geti leyft þessu að viðgangast án þess að aðhafast nokkuð – árum saman.
Eigendur í venjulegum fyrirtækjum væru fyrir löngu búnir að grípa inn í
„Ég er hræddur um að virkir eigendur og hluthafar í venjulegum fyrirtækjum væru fyrir löngu búnir að grípa inn í og gera nauðsynlegar breytingar ef viðlíka stjórnleysi ríkti og gerir hjá Icelandair.
Stjórnendur Icelandair starfa óáreittir í skjóli lífeyrissjóðanna sem fara með almannafé og við það getum við ekki unað lengur.
Að því sögðu skora ég á lífeyrissjóðina að krefjast hluthafafundar, tafarlaust, og gera nauðsynlegar breytingar á stjórn félagsins svo einhver raunverulegur möguleiki sé á að bjarga félaginu svo sátt ríki þar um.
Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka forstjóra Icelandair fyrir að sameina verkalýðshreyfinguna í eina kraftmikla heild sem sækir nú fram sameinuð og aldrei sterkari,“ skrifar hann að lokum.