Helmingi færri taka leigubíla

Leigubílstjórar finna verulega fyrir fækkun ferðamanna og minni ferðalögum Íslendinga til útlanda. Notkun á leigubílum í júlí er aðeins um helmingur á við það sem hún var á sama tíma á síðasta ári.

Ásókn í ferðir leigubíla hrundi þegar Covid-faraldurinn kom en nokkuð hefur glæðst undanfarið eftir að flugferðum fjölgaði.
Ásókn í ferðir leigubíla hrundi þegar Covid-faraldurinn kom en nokkuð hefur glæðst undanfarið eftir að flugferðum fjölgaði.
Auglýsing

Sum­arið 2020 er sér­stakt fyrir margar starfs­stéttir sem sinna ýmiss konar þjón­ustu, þar á meðal fyrir leigu­bíl­stjóra. Á þessum árs­tíma er vana­lega nóg um túra til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli og heil­mikið að gera fyrir leigu­bíl­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en sú er ekki raunin þennan júlí­mán­uð.

Covid-far­ald­ur­inn hefur haft veru­leg áhrif á ásókn í ferðir með leigu­bíl­um. „Til að byrja með dróst þetta saman um 80 til 90 pró­sent og hélst þannig fyrstu tvo mán­uð­ina. Svo þegar þjóð­fé­lagið fór að opn­ast þá fór þetta aðeins að lag­ast. Nú erum við með svona 50 til 60 pró­sent af því sem væri vana­lega,” segir Guð­mundur Börkur Thoraren­sen fram­kvæmda­stjóri BSR. 

Munar um þá sem komið hafa frá 15. júní

„Við erum að byrja að sjá fleiri útlend­inga og fáum pant­anir frá hót­elum og Kefla­vík­ur­ferð­ir. Það munar tölu­vert um þessa 60 þús­und manns sem eru búnir að koma hingað síðan 15. júní þegar opn­aði. Það kemur aðeins upp á mót­i.” 

Auglýsing

Guð­mundur bendir einnig á að það hafi áhrif að Íslend­ingar séu minna að ferð­ast með leigu­bílum en oft­ast áður í júlí, enda séu margir á ferð og flugi inn­an­lands. „Á meðan fólk er úti á landi er það ekki að nota leigu­bíl í bæn­um." Þá eru færri ferðir með Íslend­inga til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli af skilj­an­legum ástæð­um.

Mestu munar þó um fækkun erlendra ferða­manna en hjá BSR voru þeir um helm­ingur við­skipta­vina leigu­bíl­stjóra á vegum fyr­ir­tæk­is­ins á þessum árs­tíma í fyrra.

Guð­mundur seg­ist frekar bjart­sýnn á haustið og bindur vonir við að fleiri ferða­menn komi til lands­ins. 

„Al­veg saman hvar ég ætti heima í heim­inum þá myndi mér finn­ast ísland spenn­andi ferða­manna­stað­ur. Það eru ekki eins miklar tak­mark­anir og lok­anir hérna. Sum­arið er búið að taka vel á móti okkur og þjóð­fé­lagið er frekar jákvætt og þegar svo er þá er alltaf meira að gera hjá okk­ur.” 

Alls eru leyfi fyrir 580 leyfum til akst­urs leigu­bif­reiða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sam­göngu­stofu eru virk leyfi nú 495 tals­ins. Mun fleiri inn­lagnir á leigu­bíla­leyfum hafa verið eftir að Covid-far­ald­ur­inn hófst heldur en áður. Mörg þeirra eru þó aðeins í tíma­bund­inni inn­lögn, sem þýðir að við­kom­andi leigu­bíl­stjórar geta virkjað þau að nýju þegar betur árar. 



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent