Komnir með stöðu grunaðra í rannsókn héraðssaksóknara á Samherjamáli

Nokkrir einstaklingar hafa verið kallaðir til yfirheyrslu hjá héraðssaksóknara og þeir fengið réttarstöðu grunaðra. Samkvæmt málsgögnum sem lögð voru fyrir dómstóla í Namibíu telja rannsakendur fimm Íslendinga vera tengda málinu.

Samherji á Sjávarútvegssýningunni
Auglýsing

Nokkrir ein­stak­lingar hafa rétt­ar­stöðu grun­aðra og hafa þeir verið kall­aðir til yfir­heyrslu hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rann­sóknar emb­ætt­is­ins á starf­semi Sam­herja, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.



Í hópi grun­aðra er upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son en hann er fyrr­ver­andi starfs­maður Sam­herja. Þetta stað­festir Jóhannes í skrif­legu svari til Kjarn­ans. Hann seg­ist hafa fengið það stað­fest frá sínum lög­manni að hann hafi haft rétt­ar­stöðu grun­aðs í mál­inu síðan í nóv­em­ber á síð­asta ári. Hann hafi mætti í skýrslu­töku 12. nóv­em­ber, sama dag og þáttur Kveiks hafi verið sendur í loft­ið.



Ekki hefur náðst í Björgólf Jóhanns­son, starf­andi for­stjóra Sam­herja vegna vinnslu frétt­ar­inn­ar, hvorki í dag né í gær. 

Auglýsing


Kjarn­inn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um málið hjá Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara. Hann sagði rann­sókn standa yfir en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið eins og sakir standa. 



Sam­kvæmt máls­gögnum sem lögð voru fram fyrir dóm­stóla í Namibíu telja rann­sak­endur þar í landi fimm Íslend­inga vera tengda mál­inu. Auk Jóhann­esar eru í máls­gögnum nefndir þeir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og einn aðal­eig­enda Sam­herja, Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýpur og í Afr­íku, Aðal­steinn Helga­son, fyrrum starfs­maður Sam­herja, og Egill Helgi Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Mermaria Seafood Namibia.



­Sam­herj­a­málið komst í hámæli eftir að áður­nefndur þáttur Kveiks fór í loftið í nóv­em­ber á síð­asta ári en umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Al Jazeera og Wiki­leaks. Margra mán­aða rann­sókn­ar­vinna þeirra sýndi fram á meintar mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í tengslum við veiðar hennar í Namib­íu.



Í þætti Kveiks gekkst Jóhannes við því að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namibíu og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­a. 



Hér á landi eru bæði hér­aðs­sak­sókn­ari og emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra með mál tengd starf­semi Sam­herja í Namibíu til rann­sókn­ar.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent