Þingkosningar verða í september á næsta ári

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að kosið verði til Alþingis í september á næsta ári.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

Núver­andi kjör­tíma­bili Alþingis lýkur þann 28. októ­ber árið 2021 og hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra nú ákveðið að stefnt skuli að því að næsti kjör­dagur verði síð­asta laug­ar­dag í sept­em­ber á næsta ári – eða þann 25.



Þetta kemur fram í stuttri til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.         

Auglýsing


Katrín sagði í sam­tali við Kjarn­ann í lok febr­úar að hún úti­lok­aði ekki að alþing­is­kosn­ingar yrðu að vori 2021. Hún benti hins vegar á að núver­andi kjör­tíma­bili yrði til loka októ­ber á næsta ári og því væri eðli­legt að kjósa þá. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Katrín­ar, hafði þá sagt nokkrum dögum fyrr í Silfr­inu: „Ef ég á að segja hug minn allan þá segi ég; það kostar blóð, svita og tár að kom­ast til valda. Af hverju í ósköp­unum ætti maður að gefa það frá sér hálfu ári áður en að lög segja til um?“

Frá árinu 2007 hefur það gerst einu sinni að rík­is­stjórn á Íslandi hefur setið heilt kjör­tíma­bil. Sú tók við völdum 2009, fyrsta hreina tveggja flokka vinstri­st­jórn­in, og skil­aði sér yfir enda­lín­una 2013 sem minni­hluta­stjórn.

Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, sem var fyrst mynduð í febr­úar 2009 sem minni­hluta­stjórn, er líka eina rík­is­stjórn eft­ir­hrunsár­anna sem hefur tek­ist að bæta við sig fylgi í næstu kosn­ingum eftir að hún var mynd­uð. Þær fóru reyndar fram tæpum þremur mán­uðum eftir að rík­is­stjórnin varð til í febr­úar 2009. Í næstu kosn­ingum á eftir upp­lifðu Sam­fylk­ingin og Vinstri græn mesta afhroð sem rík­is­stjórn í lýð­veld­is­sög­unni hefur orðið fyr­ir, þegar rúm­lega helm­ingur fylgis þeirra leit­aði ann­að. 

Því hafa allar rík­is­stjórnir sem mynd­aðar hafa verið frá 2009 fallið í næstu kosn­ingum á eft­ir. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent