Verðlagsstofa skiptaverðs segir rétt að það komi fram að stofnunin tók saman upplýsingar um karfaútflutning áranna 2010 og 2011 og sendi úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna í upphafi árs 2012 vegna athugunar á máli sem þá var til umfjöllunar hjá úrskurðarnefnd.
Þetta virðist vera skjalið, sem Helgi Seljan fréttamaður á Ríkisútvarpinu kallaði „skýrslu“ í umfjöllun Kastljóss í mars árið 2012, en Samherji kallar „skýrsluna sem aldrei var gerð“ í myndbandsumfjöllun sinni um málið sem birtist í gær. Það virðast því áhöld um hvað rétt sé að kalla þetta skjal.
„Um var að ræða excelskjal sem unnið var af starfsmanni Verðlagsstofu og innihélt tölulegar upplýsingar sem unnar voru upp úr gagnagrunnum Fiskistofu. Í skjalinu er tafla sem sýnirallan útflutning á karfa frá Íslandi yfir fyrrgreint tímabil eftir hvaða skip veiddi aflann, aflaverðmæti og magni,“ segir í yfirlýsingu Verðlagsstofu, sem barst fjölmiðlum í dag.
Þar er því bætt við að ekki hafi verið skrifuð „sérstök skýrsla“ af hálfu Verðlagsstofu af þessu tilefni og að ekki hafi verið lagt efnislegt mat á þær upplýsingar sem voru dregnar saman og sendar úrskurðarnefnd. Hins vegar hafi verið áréttað að um trúnaðargögn væri að ræða.
Samherji fékk þau svör að engin „skýrsla“ hefði verið samin
Samherji spurði deildarstjóra Verðlagsstofunnar að því fyrr á árinu því hvort „skýrsla“ hefði verið samin og fékk þau svör að engin „skýrsla“ hefði verið samin, samkvæmt því sem fram kom í myndbandi fyrirtækisins í gær. Fyrirtækið hefur síðan krafið Ríkisútvarpið um að birta „skýrsluna“ og sakað Helga um „eiga við“ skjalið.
Skjalið sem birtist í Kastljósi og inniheldur upplýsingar um karfaútflutning áranna 2010 og 2012 var vissulega unnið og sent til nefndarmanna í úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, en Helgi Seljan hefur sagt að hann hafi afmáð af skjalinu persónugreinanlegar upplýsingar sem vísað gæti á heimildarmann.
Verðlagsstofa hefur lögum samkvæmt það hlutverk að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna. Verði Verðlagsstofa vör við misræmi og telji skýringar útgerðar ófullnægjandi getur hún skotið málinu til úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna.
Til úrskurðarnefndarinnar skulu fylgja öll gögn sem Verðlagsstofa hefur aflað um uppgjör á aflahlut áhafnar skips svo og nauðsynlegar upplýsingar um verðlagningu sambærilegs afla í hliðstæðum viðskiptum. Þau gögn sem Verðlagsstofa safnar og vinnur fyrir nefndina eru trúnaðargögn.