Icelandair lækkað um 42 prósent í morgun – Verðið nú við vænt útboðsgengi

Virði hlutabréfa í Icelandair hefur hríðfallið í morgun í kjölfar þess að félagið opinberaði að það ætlaði sér að selja nýtt hlutafé á eina krónu á hlut, eða langt undir gengi sínu við lok dags í gær.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Auglýsing

Virði bréfa í Icelandair Group hefur hríð­fallið í mjög litlum við­skiptum í morg­un. Alls hafa átt sér stað við­skipti fyrir fimm millj­ónir króna og virði bréf­anna lækkað um alls 42,07 pró­sent í þeim. Gengi bréfa í félag­inu við lokun mark­aða í gær var 1,64 krónur á hlut en er nú 0,95 krónur á hlut. Þetta er í fyrsta sinn frá því að Icelandair Group var skráð á markað að gengi bréfa í félag­inu fer undir eina krónu á hlut. Mark­aðsvirði Icelandair Group er, sam­kvæmt núver­andi gengi, 5,2 millj­arðar króna.

Hin mikla lækkun var við­búin í ljósi þess að Icelandair sendi frá sér til­kynn­ingu seint í gær­kvöldi þar sem félagið til­kynnti um að fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði þess hefði verið frestað fram í sept­em­ber. Auk þess var þar gefið upp að ákveðið hefði verið að lækka þá tölu sem sóst yrði eftir í hluta­fjár­út­boð­inu, en hún var upp­haf­lega allt að 200 millj­ónir dala, um 27,5 millj­arðar króna. Nú er hins vegar stefnt að því að selja nýja hluti fyrir allt að 20 millj­arða króna, með heim­ild til að auka hlutafé um þrjá millj­arða króna í við­bót ef umfram­eft­ir­spurn skap­ast. Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að það bendi til þess að vænt­ingar um að selja allt hluta­féð sem upp­haf­lega átti að safna, hefðu verið óraun­hæf­ar, og því hafi verið ákveðið að minnka útgáf­una.

Auglýsing
Til við­bótar greindi Icelandair frá því að stefnt væri að selja hið nýja hlutafé í kom­andi útboði á eina krónu á hlut, eða umtals­vert undir þáver­andi mark­aðs­gengi. Með því að opin­bera það varð borð­leggj­andi að hluta­bréf í Icelandair myndu hrapa í átt að, og jafn­vel niður fyr­ir, það verð sem verður í útboð­inu. Við­búið er að núver­andi hlut­haf­ar, að uppi­stöðu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sem eru að mörgu leyti sami hópur og reynt verður að fá til að kaupa nýja hluta­féð, munu þynn­ast veru­lega niður gangi áform um hluta­fjár­aukn­ing­una eft­ir.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um ávöxtun af fjár­fest­ingu fjög­urra stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins í Icelandair í frétta­skýr­ingu nýverið. Þar kom fram að aðkoma að Icelandair hafi ekki skilað mik­illi arð­semi, og í tveimur til­fellum miklu tapi.

Lagt loka­hönd á lána­línu með rík­is­á­byrgð

Hlut­hafar í Icelandair þurfa að sam­­þykkja að fram­­lengja heim­ild félags­­ins til hluta­fjár­­aukn­ing­­ar, en hún var veitt 22. maí síð­­ast­lið­inn og rennur út 1. sept­­em­ber. Vegna þessa mun Icelandair boða til nýs hlut­hafa­fundar á næstu dög­­um.

Í til­­kynn­ing­unni sem send var út í kvöld segir að til við­­bótar sé gert ráð fyrir því að til­­laga verði lögð fyrir hlut­hafa­fund sem felur í sér að stjórn félags­­ins verði heim­ilt að ákveða að hinum nýju hlutum í félag­inu fylgi áskrift­­ar­rétt­indi sem sam­svari allt að 25 pró­­sent af skrán­ingu nýrra hluta í fyr­ir­hug­uðu útboði. „Heim­ilt yrði að nýta þau í einu lagi eða í skrefum á allt að tveggja ára tíma­bili frá útgáfu sam­­kvæmt nán­­ari skil­­málum sem stjórn ákveð­­ur.“

Icelandair Group til­­kynnti fyrir sex dögum að félagið væri búið að und­ir­­­ritað samn­inga við alla kröf­u­hafa sína og væri auk þess búið að ná end­an­­­legu sam­komu­lagi við banda­ríska flug­­­­­véla­fram­­­leið­and­ann Boeing vegna kyrr­­­setn­ingar MAX flug­­­­­véla.

Í til­kynn­ing­unni í gær sagði enn fremur að við­ræður við íslensk stjórn­­völd um lána­línu með rík­­is­á­­byrgð, í sam­vinnu við Íslands­­­banka og Lands­­bank­ann séu á loka­­stigi. „Með fyr­ir­vara um sam­­þykki stjórn­­­valda fyrir lána­lín­unni, gerir félagið ráð fyrir að birta fjár­­­festa­kynn­ingu með ítar­­legum upp­­lýs­ingum fyrir fjár­­­festa og þátt­tak­endur í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­­út­­­boði á næstu dög­­um.“

Mark­aðsvirðið hrunið

Mark­aðsvirði Icelandair er nú, líkt og áður sagði um 5,2 millj­arðar króna. 

Hæst fór það í apríl 2016 þegar það var 191,5 millj­arðar króna. mark­aðsvirðið í dag er því undir þrjú pró­sent af því sem það var vorið 2016. 

Við þá tölu verður að bæta að í apríl 2019 var hlutafé í Icelandair aukið um 11,5 pró­sent og það selt til banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins PAR Capi­tal Mana­gement á 5,6 millj­arða króna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent