Mynd: Icelandair iceairny.jpg
Mynd: Icelandair

Stórir lífeyrissjóðir hafa ekki farið vel út úr fjárfestingu í Icelandair

Aðkoma stærstu hluthafa Icelandair, sem hafa það hlutverk að ávaxta lífeyri landsmanna, að félaginu síðastliðinn áratug hefur ekki skilað mikilli arðsemi, og í tveimur tilfellum miklu tapi. Þessir sömu sjóðir munu á næstu dögum þurfa að taka ákvörðun um hvort þeir leggi Icelandair til nýtt hlutafé.

Fram­tíð Icelandair Group ætti að skýr­ast á allra næstu vik­um. Í lok júlí var greint frá því, í frétta­til­kynn­ingu sem send var út á föstu­degi fyrir versl­un­ar­manna­helgi, að félagið hefði náð sam­komu­lagi við flesta þá hag­að­ila sem það átti eftir að semja við. Það þýðir að það hafi und­ir­ritað samn­inga við flesta kröfu­hafa og, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, náð sam­komu­lagi í meg­in­at­riðum við þá sem eftir væru. Til stendur að ljúka öllum þessum samn­ingum í dag, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans. 

Umræddir hag­að­ilar eru þeir sem Icelandair skuldar fjár­muni. Um er að ræða þrjá banka, þar af tvo íslenska rík­is­banka, Boeing flug­vél­aris­ann sem Icelandair pant­aði 16 737 MAX vélar af fyrir nokkrum árum, en á eftir að fá tíu þeirra afhentar og hinar eru kyrr­sett­ar. Auk þeirra þarf Icelandair að semja við færslu­hirða, og flug­véla­leigur áður en að félagið getur reynt að sækja sér allt að 200 millj­ónir dala, um 27 millj­arða króna, í nýtt hlutafé síðar í ágúst­mán­uð­i. 

Í til­kynn­ing­unni sem send var út í síð­ustu viku sagði að allir samn­ingar sem væru und­ir­rit­aðir væru „ háðir því að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár og geri samn­ing um lána­línu með rík­­is­á­­byrgð.“

Unnið er að útfærslu á láni með rík­­is­á­­byrgð með íslenskum stjórn­­völd­um, Íslands­­­banka og Lands­­bank­­an­um, sem báðir eru þegar á meðal stærstu kröfu­hafa Icelanda­ir. 

Auglýsing

Þegar allir samn­ingar liggja fyrir ætlar Icelandair að birta fjár­­­festa­kynn­ingu með ítar­­legum upp­­lýs­ingum fyrir fjár­­­festa og þátt­tak­endur í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­­út­­­boði.

Félagið hefur þegar und­ir­­ritað nýja lang­­tíma­­samn­inga við stétt­­ar­­fé­lög flug­­­manna, flug­­freyja og flug­­­þjóna og flug­­­virkja.

Tap­aði 245 millj­ónum á dag

Staða Icelandair Group er orðin nokkuð dökk. Í nýlega birtu árs­hluta­upp­gjöri kom fram að félagið hefði tapað 331 milljón dölum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem sam­svarar tæpum 45 millj­­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Það er tap upp á um 245 millj­ónir króna á hverjum ein­asta degi á fyrri hluta árs­ins. 

Auk þess gengur hratt á laust fé félags­ins. Í lok árs 2019 átti Icelandair Group 302 millj­ónir dala í laust fé. Í lok mars­mán­aðar 2020 var það 281 millj­ónir dala og enn umtals­vert yfir því 200 milljón dala lausa­fjár­við­miði sem félagið stefnir ætið að því að vera yfir. 

Það breytt­ist hins vegar hratt á öðrum árs­fjórð­ungi, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní. Þá fór lausa­fjár­staða Icelandair niður í 151,2 millj­ónir dala, um 21,3 milj­arða króna. Lausa­féð hefur því helm­ing­ast frá ára­mót­um. Þorri þess bruna átti sér stað á öðrum árs­fjórð­ungi þegar laust fé lækk­aði um 46 pró­sent. 

Það þýðir að lausa­fjár­staðan er komin undir það við­mið sem Icelandair vinnur eft­ir, en stefna þess hefur verið að lausa­fjár­staðan fari aldrei undir 200 millj­ónir dala á hverjum tíma. Auk þess kemur fram í árs­reikn­ingi Icelandair að félagið hafi brotið lána­skil­mála sem geri það að verkum að það getur ekki dregið á ódregnar lána­línur upp á 62,7 millj­ónir dala. 

Allt veltur á hluta­fjár­út­boð­inu

Því er ljóst að allt mun velta á að Icelandair tak­ist að selja það nýja hlutafé sem félagið ætlar að gefa út síðar í ágúst­mán­uði. Tak­ist það ekki, munu allir samn­ingar við hag­að­ila falla úr gildi og fyr­ir­greiðslan með rík­is­á­byrgð­inni verður ekki lengur í boði, að minnsta kosti í því formi sem verið er að semja um. 

Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir, hefur ítrekað sagt í fjöl­miðlum að horft sé til þess að sækja hið nýja hluta­fé, allt að 27 millj­arða króna, að minnsta kosti að hluta til núver­andi hlut­hafa.

Sá aðili sem var stærsti hlut­hafi Icelandair lengi vel, ­­banda­ríski fjár­­­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­­ar­­­­­­­sjóð­­­­­­­ur­inn PAR Capi­tal Mana­gement, hefur und­an­farið minnkað hlut sinn í félag­inu veru­lega, úr 13,7 pró­­­­sent í 10,99 pró­­­­sent. Sjóð­ur­inn kom fyrst inn í hlut­hafa­hóp Icelandair í apríl 2019 þegar hann keypti 11,5 pró­sent hlut á 5,6 millj­arða króna, og bætti síðan við sig. Ljóst er að tap hans á fjár­fest­ing­unni hleypur á mörgum millj­örðum króna. PAR Capi­tal er ekki á meðal þeirra sem Icelandair á í við­ræðum við um að leggja félag­inu til nýtt fé, og úti­lokað þykir að sjóð­ur­inn muni taka frek­ari þátt í að fjár­magna íslenska flug­fé­lag­ið.

Auglýsing

Fyrir utan PAR Mana­gement eru stærstu eig­endur Icelandair íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir.

LSR hefur hagn­ast á fjár­fest­ing­unni

Fjórir þeirra skera sig úr, fjórir stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LS­R), Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, Gildi líf­eyr­is­sjóður og Birta líf­eyr­is­sjóð­ur. 

Þeir komu allir að síð­ustu end­ur­skipu­lagn­ingu Icelandair Group sem átti sér stað fyrir ára­tug, árið 2010. Kjarn­inn leit­aði upp­lýs­inga hjá þessum fjórum stærstu sjóðum lands­ins um hvernig ávöxtun þeirra af fjár­fest­ingu í Icelandair hefði verið síð­ast­lið­inn ára­tug. 

Sá sjóður sem hagn­ast hefur mest á fjár­fest­ingu sinni í Icelandair er LSR. Frá því að flug­fé­lagið var end­ur­skipu­lagt hafa A-deild, B-deild og sér­eign þessa stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins sam­tals keypt hluta­bréf í Icelandair fyrir 7,9 millj­arða króna. LSR hefur hins vegar selt bréf fyrir alls 7,4 millj­arða króna á tíma­bil­inu og fengið tæp­lega 1,1 millj­arð króna í arð­greiðsl­ur. Hagn­aður LSR af við­skiptum með bréf í Icelandair nemur því rúm­lega 500 millj­ónum króna á síð­ustu tíu árum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur staðið í stórræðum undanfarna mánuði við að reyna að bjarga félaginu.
Mynd: Skjaskot/RÚV

Auk þess eiga allar deildir sjóðs­ins sam­an­lagt 455 millj­ónir hluta í Icelandair eins og sakir standa í dag, eða um 8,4 pró­sent af öllu hluta­fé. Virði þess miðað við lokun markað í gær, þegar gengi bréf­anna var 1,83 krónur á hlut, var rúm­lega 800 millj­ónir króna. Ef vænt hluta­fjár­aukn­ing, sem Icelandair stefnir að í þessum mán­uði, gengur eftir eins og til stendur þá munu eign núver­andi hlut­hafa þynn­ast niður í 15,3 pró­sent.  

Versl­un­ar­menn nokkuð á pari

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna er stærsti ein­staki eig­andi Icelandair Group. Alls á sjóð­ur­inn 11,8 pró­sent hlut í flug­fé­lag­inu. Mark­aðsvirði hans er um 1.150 millj­ónir króna. Ef ítr­ustu áform um að auka hlutafé í Icelandair ganga eftir mun virði þess hlutar þynn­ast niður í um 175 millj­ónir króna. 

Í svari sjóðs­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kemur fram að frá árinu 2010, þegar mik­ill meiri­hluti bréf­anna var keypt­ur, hafi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn keypt bréf í Icelandair fyrir 2,9 millj­arða króna að mark­aðsvirði og selt fyrir 1,2 millj­arða króna. Arð­greiðslur til sjóðs­ins á tíma­bil­inu nema 1,7 millj­örðum króna. Sölur og arð­greiðslur eru því sam­an­lagt sama tala, 2,9 millj­arðar króna, og sú sem sjóð­ur­inn hefur greitt fyrir hluta­bréf í Icelandair Group. 

Auglýsing

Eins og staðan er í dag er því raun­á­vöxtun sjóðs­ins frá upp­hafi, miðað við 3. ágúst 2020, 3,04 pró­sent, sam­kvæmt svari hans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. En ef miðað er við stöð­una ef áform um hluta­fjár­aukn­ingu ganga eftir er ljóst að ávinn­ingur Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna af við­skiptum með bréf í Icelandair síð­ast­lið­inn ára­tug er ein­ungis virði þeirra bréfa sem hann heldur á nú.

Nei­kvæð ávöxtun upp á 72,4 pró­sent

Gildi líf­eyr­is­sjóður er einnig á meðal stærstu eig­enda Icelandair með 7,24 pró­sent eign­ar­hlut.

Nettó fjár­fest­ing Gildis í flug­fé­lag­inu síð­ast­lið­inn ára­tug, bæði beint og óbeint í gegnum Fram­taks­sjóð Íslands sem lengi vel var stærsti eig­andi Icelanda­ir, hefur numið 2,3 millj­örðum króna, að teknu til­liti til arð­greiðslna á tíma­bil­inu. Vegið kaup­gengi er 5,89 krónur á hlut en mark­aðsvirði Icelandair við lokun mark­aða í gær var 1,83 krónur á hlut.  Mark­aðsvirði hlutar Gildis er um 720 millj­ónir króna. 

Í svari Gildis til Kjarn­ans er þó miðað við mark­aðsvirðið eins og það var í lok dags á þriðju­dag, þegar það var 1,95 krónur á hlut. Þá var mark­aðsvirði hlutar Gildis 768 millj­ónir króna. Í svar­inu segir síðan orð­rétt: „Áætluð raun­á­vöxtun sjóðs­ins af þess­ari fjár­fest­ingu í Icelandair yfir tæp­lega tíu ára fjár­fest­ing­ar­tíma nemur um -72,4 pró­sent. Á árs­grund­velli sam­svarar það um 12,3 pró­sent nei­kvæðri raun­á­vöxtun yfir umrætt tíma­bil.“ 

Gildi bendir á í svari sínu að til sam­an­burðar hafi raun­á­vöxtun af inn­lendu skráðu hluta­bréfa­safni sjóðs­ins í heild sinni um 110,8 pró­sent yfir sama tíma­bil, eða sem nemur um 7,9 pró­sent á árs­grund­velli. 

Líka með nei­kvæða ávöxtun

Birta líf­eyr­is­sjóður á í dag 7,07 pró­sent hlut í Icelandair Group. Nettó við­skipti Birtu með bréf í félag­inu frá 2010 eru 1,9 millj­arðar króna en vegið kaup­gengi eign­ar­hluta sem hafa verið keypt og seld er 7,13 krónur á hlut. Gengi Icelandair Group við lok við­skipta í gær var, líkt og áður sagði, 1,83 krónur á hlut. Eign­ar­hlutur Birtu er því met­inn á 703 millj­ónir króna.

Nafn­á­vöxtun Birtu vegna fjár­fest­ingar í Icelandair síð­ast­lið­inn ára­tug er nei­kvæð um -15,59 pró­sent og reikn­ast sem -17,66 pró­sent nei­kvæð raun­á­vöxt­un, sam­kvæmt svari sjóðs­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. 

Í svar­inu er til­tekið að ekki sé tekið til­lit til óbeinn­ar, og jákvæðr­ar, afkomu Birtu og for­vera sjóðs­ins af eign­ar­hlut í Fram­taks­sjóði Íslands sem „tengja má við við­skipti með Icelanda­ir“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar