„Kópur er ekki hluti af Alþýðusambandi Íslands, er ekki aðili að neinum kjarasamningnum, VIRK, Bjargi, orlofssjóðum, fræðslusjóðum eða sjúkrasjóðum,“ segir í yfirlýsingu frá Drífu Snædal, forseta ASÍ, sem send var á fjölmiðla í dag.
Yfirlýsingin snýr að nýju stéttarfélagi, sem ber heitið Kópur, sem hefur verið auglýst að undanförnu. Auglýsingum hefur, að sögn Drífu, einkum verið beint að Pólverjum sem starfa á Íslandi og hefur verið látið í veðri vaka að félagið „hafi aðgang að öllum þeim gæðum og þjónustu við félagsmenn sem íslensk verkalýðshreyfing hefur byggt upp um áratuga skeið og jafnvel að félagið sé tengt Alþýðusambandi Íslands.“
Þetta segir Drífa rangt.
„Það eru engin tengsl milli ASÍ og Kóps og okkur vitanlega hefur Kópur ekki gert neina kjarasamninga. Kópur er ekki með fræðslusjóð til að greiða menntun, er ekki með sjúkrasjóð fyrir þá sem verða veikir í lengri tíma, á ekki aðild að Bjargi íbúðafélagi sem býður lægri leigu og húsnæðisöryggi, er ekki aðili að VIRK starfsendurhæfingu og á ekki orlofshús. Mögulegir félagsmenn í Kópi myndu ekki njóta neinna ef þessum réttindum né hafa aðgang að lögfræðilegri og annarri faglegri aðstoð sem launafólki býðst almennt hjá sínum stéttarfélögum,“ segir í yfirlýsingu Drífu.
Því er bætt við að hvatt sé til þess að þessum upplýsingum sé drefist sem víðast og með því „komið í veg fyrir að launafólk afsali sér óafvitandi réttindum sem verkalýðshreyfingin hefur byggt upp um áratuga skeið.komið í veg fyrir að launafólk afsali sér óafvitandi réttindum sem verkalýðshreyfingin hefur byggt upp um áratuga skeið.
Stéttarfélagið Kópur er, samkvæmt vefsetri þess á Facebook, nýlega stofnað og formaður þess er sagður heita Stanley Kowal. Kjarninn reyndi að setja sig í samband við símanúmer sem þar er gefið upp, án árangurs.