Alþýðusambandið varar við nýju stéttarfélagi

Forseti ASÍ segir nýtt stéttarfélag, sem ber heitið Kópur og hefur einkum verið markaðssett til Pólverja sem búa hér á landi, hafi ekki nein tengsl við ASÍ. Varað er við því að launafólk afsali sér réttindum með því að ganga í félagið.

Merki Kóps stéttarfélags.
Merki Kóps stéttarfélags.
Auglýsing



„Kópur er ekki hluti af Alþýðu­sam­bandi Íslands, er ekki aðili að neinum kjara­samn­ingn­um, VIRK, ­Bjargi, orlofs­sjóð­um, fræðslu­sjóðum eða sjúkra­sjóð­u­m,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Drífu Snædal, for­seta ASÍ, sem send var á fjöl­miðla í dag. 

Yfir­lýs­ingin snýr að nýju stétt­ar­fé­lagi, sem ber heitið Kóp­ur, sem hefur verið aug­lýst að und­an­förnu. Aug­lýs­ingum hef­ur, að sögn Drífu, einkum verið beint að Pól­verjum sem starfa á Íslandi og hefur verið látið í veðri vaka að félagið „hafi aðgang að öllum þeim gæðum og ­þjón­ustu við félags­menn sem íslensk verka­lýðs­hreyf­ing hefur byggt upp um ára­tuga skeið og jafn­vel að félagið sé tengt Alþýðu­sam­bandi Íslands­.“ 

Þetta segir Drífa rang­t. 

Auglýsing

„Það eru engin tengsl milli ASÍ og Kóps og okkur vit­an­lega hefur Kópur ekki gert neina kjara­samn­inga. Kópur er ekki með fræðslu­sjóð til að greiða mennt­un, er ekki með sjúkra­sjóð fyrir þá sem verða veikir í lengri tíma, á ekki aðild að Bjargi íbúða­fé­lagi sem býður lægri leigu og hús­næð­is­ör­yggi, er ekki aðili að VIRK starfsend­ur­hæf­ingu og á ekki orlofs­hús. Mögu­legir félags­menn í Kópi myndu ekki njóta neinna ef þessum rétt­indum né hafa aðgang að lög­fræði­legri og annarri fag­legri aðstoð sem launa­fólki býðst almennt hjá sínum stétt­ar­fé­lög­um,“ segir í yfir­lýs­ingu Drífu.

Merki Kóps. Mynd: Af Facebook.

Því er bætt við að hvatt sé til þess að þessum upp­lýs­ingum sé dref­ist sem víð­ast og með því „komið í veg fyrir að launa­fólk afsali sér óaf­vit­andi rétt­indum sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur byggt upp um ára­tuga skeið.komið í veg fyrir að launa­fólk afsali sér óaf­vit­andi rétt­indum sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur byggt upp um ára­tuga skeið.

Stétt­ar­fé­lagið Kópur er, sam­kvæmt vef­setri þess á Face­book, nýlega stofnað og for­maður þess er sagður heita Stanley Kowal. Kjarn­inn reyndi að setja sig í sam­band við síma­númer sem þar er gefið upp, án árang­urs.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent