Ebba Schram borgarlögmaður Reykjavíkurborgar hefur sent Minjastofnun Íslands með athugasemdum borgarinnar á ætlaðri friðlýsingu menningar- og búsetulandslanfs við Þerneyjarsund, í Þerney og á Álfsnesi.
Í bréfinu, sem er dagsett 9. september, er kallað eftir mati stofnunarinnar á því hvort hægt sé að tryggja vernd minja á svæðinu með öðrum hætti en friðlýsingu. Borgarlögmaður segir að mikilvægt sé að slíkt mat fari fram með hliðsjón af því að um sé að ræða verulega fjárhagslega hagsmuni og stjórnarskrárvarinn eignarétt annars vegna Reykjavíkurborgar og hins vegar fyrirtækisins Björgunar ehf., sem hefur í hyggju að byggja upp frekari starfsemi innan athafnasvæðis fyrirtækisins sem friðlýsingin myndi ná til.
Ef áform Minjastofnunar Íslands um friðlýsingu verða að veruleika þá mun sú friðlýsing ná yfir ætlað vegstæði Sundabrautar og setja þá framkvæmd, miðað við þá valkosti sem nú eru til skoðunar um legu hennar, í uppnám.
Kjarninn greindi frá því í gær að Vegagerðin hefði sent bréf til Minjastofnunar vegna málsins 1. september síðastliðinn.
Þar er áformum Minjastofnunar um friðlýsingu við Þerney og Álfsnes mótmælt, en gert er ráð fyrir að síðari áfangi Sundabrautar liggi frá Gufunesi, um Geldingarnes, yfir Leiruvog, Gunnunes, Álfsnes og Kollafjörð.
Sundabraut verið á dagskrá í áratugi
Áratugir eru síðan að Reykjavíkurborg og íslenska ríkið settu fyrst fram áform um að leggja Sundabraut. Vegurinn hefur raunar verið hluti af aðalskipulagi Reykjavíkurborgar frá árinu 1985 og inni á vegaskrá sem fyrirhugaður þjóðvegur frá 1995.
Samþykkt ofangreindra laga og samgönguáætlunar var hluti af stærra samkomulagi um að flýta samgönguframkvæmdum, meðal annars á forsendum svokallaðs samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem fjallar um hvernig kostnaðarskipting við stórframkvæmdir þar verður á milli ríkis og sveitarfélaganna sem mynda svæðið. Í þeim sáttmála er þó ekki talað ákveðið um Sundabraut þurfi að verða að veruleika heldur að við endanlega útfærslu framkvæmda verði „sérstaklega hugað að greiðri tengingu aðliggjandi stofnbrauta svo sem Sundabrautar inn á stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins.“