Icelandair Group, Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ), Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem samkomulag þeirra um að ljúka deilum vegna uppsagna flugfreyja og -þjóna Icelandair 17. júlí síðastliðinn, í miðri kjaradeilu. Kjarninn greindi fyrst frá því að slík yfirlýsing væri í burðarliðnum í gærmorgun. Með undirritun yfirlýsingarinnar fellur ASÍ frá ætluðum málarekstri fyrir Félagsdómi vegna meintra brota Icelandair. Hlutafjárútboð Icelandair, þar sem stefnt er að því að safna að minnsta kosti 20 milljörðum króna til að bjarga félaginu stendur nú yfir.
Sú yfirlýsing sem send var út í dag er að efninu til önnur tveggja sem Drífa Snædal, forseti ASÍ, fékk umboð til að undirrita á aukafundi miðstjórnar ASÍ í gærmorgun.
„Aðilar eru sammála um að lögmæt og rétt viðbrögð atvinnurekenda og stéttarfélaga í erfiðum og langdregnum kjaradeilum eigi að fara eftir þeim leikreglum og lögum sem gilda í samskiptum aðila vinnumarkaðar og sem koma fram í lögum nr. 80/1938.
Þau viðbrögð Icelandair, með stuðningi SA, þegar félagið taldi vonlaust að ná árangri í viðræðum við Flugfreyjufélag Íslands, að segja upp öllum starfandi flugfreyjum og flugþjónum þann 17.7.2020 eru hörmuð enda ekki í samræmi við þær góðu samskiptareglur sem aðilar vinnumarkaðarins vilja viðhafa. Icelandair telur nauðsynlegt fyrir framtíð félagsins að virða stéttarfélög og sjálfstæðan samningsrétt starfsfólks síns sem tryggir frið um starfsemi félagsins á gildistíma kjarasamninga og á meðan leitað er lausna í kjaraviðræðum.
Aðilar munu leggja sig fram um að halda góðu samstarfi og munu leggja sitt af mörkum til þess að endurvinna og efla traust sín í milli.
Með yfirlýsingu þessari eru aðilar sammála um að með henni ljúki öllum deilum milli þeirra um þá atburði sem áttu sér stað í samskiptum þeirra þann 17.7 2020 og mun hvorugur aðila gera kröfur á hinn vegna þeirra.“
Undir yfirlýsinguna skrifa Drífa, Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Berglind Hafsteinsdóttir, formaður FFÍ.
Kjarninn greindi ítarlega frá þeim atburðum sem leiddu til þess að yfirlýsingin var undirrituð í fréttaskýringu í morgun. Hana má lesa hér.
Í fréttatilkynningu vegna undirritunar á yfirlýsingunni er haft eftir Drífu að í nýafstaðinni kjaradeilu hafi Icelandair, með stuðningi SA, beitt brögðum sem hafi ekki sést á Íslandi áratugum saman en þekkist víða erlendis og hafi það að markmiði að brjóta niður stéttarfélög og samstöðu launafólks. „Með þessari yfirlýsingu er gengist við því að slíkar aðferðir eigi sér ekki pláss á íslenskum vinnumarkaði. Ég fagna því að hér hafi náðst niðurstaða aðila í milli án þess að fara fyrir dóm. Það er nauðsynlegt fyrir alla að farið sé eftir þeim formlegu og óformlegu leikreglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði.“