Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að loka skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu, tímabundið í fjóra daga frá 18. – 21. september. Þetta er gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur þegar tekið gildi, samkvæmt tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis um þessar ráðstafanir segir að á þremur sólarhringum þar sem greindust alls 38 smit hafi að minnsta kosti fjórðungur þeirra tengst heimsókn á ákveðnar krár og skemmtistaði í Reykjavík fyrir rúmri viku.
Bregðast þurfi við sem fyrst með markvissum aðgerðum til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur með tilheyrandi afleiðingum.
„Mitt mat er að í uppsiglingu geti verið stór hópsýking sem á uppruna sinn í heimsóknum á krár og skemmtistaði á höfuðborgarsvæðinu,“ segir sóttvarnalæknir í minnisblaðinu.
Kaffihús og veitingahús geta áfram starfað
Lokunin tekur til kráa og skemmtistaða í Reykjavík, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Kjósarhreppi og á Seltjarnarnesi. Staðir sem eru með rekstrarleyfi fyrir fleiri tegundum veitingastaða en krám og skemmtistöðum geta áfram, „hvað þær tegundir varðar“.
„Þannig geta veitingastaðir sem í rekstrarleyfi eru skráðir sem veitingahús eða kaffihús, haldið áfram starfsemi á þeim grundvelli, en kráar- og skemmtistaðastarfsemi er óheimil,“ segir í tilkynningu stjórnvalda.