Appelsínugul viðvörun – Þórólfur boðar staðbundnar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu

Sóttvarnalæknir mun gera tillögur um hertar en staðbundnar aðgerðir til heilbrigðisráðherra vegna fjölgunar smita af kórónuveirunni síðustu daga. Hann nefnir vínveitingastaði sérstaklega í því sambandi. Til skoðunar er að hafa öldurhús lokuð um helgina.

Þórólfur Guðnason ætlar að leggja til staðbundnar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem smit síðustu daga hafa komið upp.
Þórólfur Guðnason ætlar að leggja til staðbundnar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem smit síðustu daga hafa komið upp.
Auglýsing

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir segir að sú aukn­ing sem orðið hefur í smitum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ustu daga sé ekki óvænt en þó ákveðin von­brigði. Á meðan veiran er í sam­fé­lag­inu megi eiga von á sveiflum í fjölda smita, sér­stak­lega á meðan far­ald­ur­inn er útbreiddur erlend­is. Á fundi almanna­varna í dag minnti hann á að veiran væri óút­reikn­an­leg og því væri mik­il­vægt að bregð­ast hratt við og „slá á þennan far­aldur sem er í upp­sigl­ing­u“. Sagði hann við­búið að herða þurfi aðgerðir ef ástand far­ald­urs­ins versnar og sömu­leiðis að slaka á aðgerðum þegar betur geng­ur.

„Nú er app­el­sínugul við­vörun á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u,“ segir Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra en á síð­asta fundi var kynnt til sög­unnar lita­kerfi, sam­bæri­legt því og Veð­ur­stofan notar til að vara við veðri.

32 hafa greinst með veiruna síð­ustu tvo sól­ar­hringa. Ungt fólk er þar í meiri­hluta.

Auglýsing

Smit sem greinst hafa síð­ustu daga tengj­ast vín­veit­inga­stöð­um, háskólum og nokkrum vinnu­stöðum og verður hertum aðgerðum beint sér­stak­lega að þeim, að sögn Þór­ólfs sem er með minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra í und­ir­bún­ing­i.  

Ekki eru óyggj­andi merki um að smit sem greinst hafa með­al­ ­nem­enda og starfs­fólks Háskóla Reykja­víkur og Háskóla Íslands hafi átt sér stað innan veggja þeirra stofn­ana.

Aukn­ing í sýk­ingum kalli á stað­bundnar og mark­vissar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem smitin hafa verið að grein­ast. Sagði hann ljóst að fólk sem sæki vín­veit­inga­staði sé lík­legt til að smit­ast og smita aðra. Minnti hann á að erlendis væri víða verið að beita harð­ari aðgerðum en hér á vín­veit­inga­stöðum „og við þurfum að skoða það betur sér­stak­lega í ljósi þess að vín­veit­inag­staðir virð­ast eiga stóran þátt í þeirri bylgju sem við erum í nún­a,“ sagði Þórólfur en ítrek­aði að þessu væri ekki beint sér­stak­lega að stöð­unum sem slíkum heldur fólk­inu sem þá sæk­ir.

Víðir sagði að ekki væri grunur um brot á sótt­vörnum á þeim vín­veit­inga­stöðum sem tengj­ast smitum sem talin eru rakin til síð­ustu helg­ar.



Þá sagði Þórólfur brýnt að skerpa vel á sótt­varn­ar­að­gerðum á vinnu­stöðum og í skólum og munu til­lögur þar um einnig verða í minn­is­blaði Þór­ólfs. Einnig þurfi að skerpa á vernd við­kvæmra hópa, s.s. á sam­býlum og öldr­un­ar­heim­il­um.

Nýr stofn af veirunni er nú kom­inn til sög­unn­ar. Hann greind­ist fyrst í ferða­mönnum sem komu hingað til lands í ágúst og áttu að vera í sótt­kví og svo ein­angr­un. Í skoðun er hvort eitt­hvað hafi farið úrskeiðis þar, sagði Þórólf­ur. Að minnsta kosti sjö inn­an­lands­smit eru af þeim stofni.

Að sögn Þór­ólfs hefur það því miður verið að ger­ast und­an­farið að fólk með sjúk­dóms­ein­kenni hafi farið til vinnu. Hann ítrek­aði því enn og aftur mik­il­vægi þess að vera heima, hafa sam­band við heilsu­gæslu og biðja um sýna­töku, ef ein­kenni sem benda til COVID-19 láta á sér bera. Ein­stak­lings­bundnar aðgerðir vega að mati Þór­ólfs mun þyngra en boð og bönn stjórn­valda.

„Við erum að gefa út sterkar við­var­an­ir,” sagði Víðir í lok fund­ar­ins.  „Við erum ekk­ert að grín­ast með þetta. Við höfum séð það svart­ara, við getum unnið þetta sam­an, og við munum örugg­lega ­gera það.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent