Ekki augljós tengsl milli smitaðra í Háskóla Íslands

Rektor Háskóla Íslands segir mjög mikilvægt að fleiri úr háskólasamfélaginu fari í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu til að kortleggja megi þau smit sem upp hafa komið meðal fimm starfsmanna skólans.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir mikilvægt að komast að því hvernig starfsmenn Háskóla Íslands smituðust.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir mikilvægt að komast að því hvernig starfsmenn Háskóla Íslands smituðust.
Auglýsing

Fimm starfs­menn Háskóla Íslands, sem störf­uðu í fjórum bygg­ingum skól­ans, hafa greinst með kór­ónu­veirusmit. Í skimun Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, sem hófst í skól­anum í gær, greind­ist þó aðeins einn af um 450 sem voru skimaðir með smit. Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir það vissu­lega góðar fréttir en að áhyggjur skóla­yf­ir­valda snúi að því að ekki séu sýni­leg tengsl milli þeirra sem hafa greinst með veiruna innan háskól­ans. Fólkið sé ekki í nánu sam­starfi. Því segir hann gríð­ar­lega mik­il­vægt að sem flestir af nem­endum og starfs­mönnum skól­ans fari í skimun hjá Íslenskri erfða­grein­ingu líkt og þeir hafa fengið boð um.



„Fleiri þurfa að fara í skimun svo hægt sé að kort­leggja þetta bet­ur,“ segir Jón Atli í sam­tali við Kjarn­ann í morg­un. Hann var þá að koma af fundi neyð­ar­stjórnar háskól­ans sem fund­aði dag­lega í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins en hefur fundað sjaldnar upp á síðkast­ið. Það breyt­ist héðan í frá og er stefnt að tíð­ari fundum neyð­ar­stjórnar á ný. Næsti fundur hennar verður strax á morg­un.

Auglýsing



Hann segir enn ekki full­víst hvort að fólkið sem um ræðir hafi smit­ast í háskól­anum eða hvort að það hafi smit­ast ann­ars stað­ar. Þá veit hann ekki heldur hvort að öll smitin séu ný eða hvort að um gömul smit sé að ræða.



Jón Atli segir að allt frá því að haust­miss­eri hófst hafi verið lögð mikil áhersla á sótt­varnir og fjar­lægð­ar­mörk milli fólks. Þá er reynt að tryggja ítar­leg þrif eins og kostur er. Hvort gripið verði til frek­ari aðgerða en þegar hefur verið gert er svo að sögn Jóns Atla í sífelldri skoð­un. „Við erum með  til­mæli um að fundir séu sem mest á net­inu, kennslan er svo að grunni til raf­ræn en við viljum hafa eitt­hvert stað­nám og þá sér­stak­lega fyrir nýnema. Við höfum ekki breytt þessum áherslum en við erum til­búin í það ef þarf.“



Jón Atli segir starfs­menn háskól­ans finna fyrir því að nem­endur séu áhyggju­full­ir. Háskóli sé sam­fé­lag og í ástandi eins og því sem nú ríki sé erfitt að halda utan nem­end­urna. Þess vegna hafi verið ákveðið að bjóða nýnemum í stað­nám því þeirra tengsl inn í háskóla­sam­fé­lagið eru minni en eldri nem­enda. „En málið er að þetta er erfitt og þetta getur leitt til auk­ins brott­falls sem við viljum auð­vitað ekki sjá. Við reynum að mæta þessu eins vel og við getum en við vitum að aðstæður nem­enda eru víða ekki góð­ar.“



Jón Atli vonar að frek­ari skimun geti varpað ljósi á tengsl starfs­mann­anna sem greinst hafa með veiruna. Kort­lagn­ing á því sé mjög mik­il­væg.



„Við fögnum því að þessi skimun sé í gangi og þökkum Kára [Stef­áns­syni] og Íslenskri erfða­grein­ingu inni­lega fyr­ir,“ segir Jón Atli. „En við þurfum að ná að kom­ast að því hvernig smitin tengjast, það er mjög mik­il­vægt. Ég hvet því ein­dregið fólk innan Háskóla Íslands að fara í skimun sem þeim býðst hjá Íslenskri erfða­grein­ingu í dag og á morg­un.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent