Þórólfur: Ekki tilefni til harðari aðgerða

Sóttvarnarlæknir mun leggja til að krár og skemmtistaðir verði áfram lokaðir fram yfir næstu helgi. Ekki sé þó tilefni til að grípa til harðari takmarkana á allt landið en þeim sem eru við lýði.

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Auglýsing

„Ég held að á þess­ari stundu sé vand­séð að til­efni sé til harð­ari aðgerða.“ Þetta sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varn­ar­læknir á blaða­manna­fundi Almanna­varna í dag. Því mun hann ekki leggja til við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að harð­ari tak­mark­anir verði settar á vegna fjölg­unar í kór­ónu­veirusmitum und­an­farna daga. 

Þórólfur sagð­ist hins vegar ætla að leggja fram við ráð­herr­ann að krár og skemmti­staðir verði áfram lok­aðir til 27. sept­em­ber, eða fram yfir næstu helgi, en til­mælum um að halda þeim lok­uð­um, vegna fjölda smita sem áttu upp­tök sín á öld­ur­húsum höf­uð­borg­ar­inn­ar, var komið til heil­brigð­is­ráð­herra í síð­ustu viku. 

Auglýsing
Alls greindust 38 með kór­ón­u­veirusmit inn­­­­an­lands í gær. Það er umtals­vert færri en greindust á föst­u­dag, þegar 75 smit voru greind. Und­an­farna fimm daga hafa 166 smit greinst inn­­­­an­lands. 

Alls voru rúm­­­­lega 2.395 sýni tekin í land­inu í gær, sem er mun færri en í fyrra­dag þegar þau voru 3.600.  

55 pró­­­sent þeirra sem voru greindir sýktir í gær voru í sótt­­­­­kví við grein­ing­u. 

Sótt­varn­ar­læknir sagði ánægju­legt að sjá þessa fækkun á jákvæðum sýnum milli daga, en vildi þó túlka lækk­un­ina með var­úð. Það væri jákvætt að það væri ekki að eiga sér stað áfram­hald­andi veld­is­vöxt en það ætti ekki að lesa of mikið í þróun milli ein­stakra daga.

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri sagði á fund­inum að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að lýsa yfir neyð­ar­stigi þótt það hafi verið rætt. Hún hvatti alla sem geta að vinna heima á næst­unni og greindi frá því að í þess­ari þriðju bylgju sem nú stendur yfir hafi heim­il­is­of­beldi auk­ist.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent