Í gær greindust 45 ný tilfelli af COVID-19 hér á landi.Frá 15. september hafa samtals 369 greinst með sjúkdóminn hér á landi. Meirihluti þeirra sem greindust smitaðir í gær voru í sóttkví við greiningu eða 62 prósent.
Fjórtán daga nýgengi innanlandssmits er nú 103,1 á hverja 100 þúsund íbúa. Í gær voru tekin 2.724 sýni hér á landi, þar af tæplega 500 við landamærin.
Yfir 2.360 manns eru í sóttkví og 400 í einangrun vegna sjúkdómsins. Tveir liggja á sjúkrahúsi.
Auglýsing
Frá upphafi faraldursins hefur 2.561 greinst með kórónuveiruna á Íslandi. Tíu hafa dáið vegna COVID-19.