Sjálfstæðisflokkur og Framsókn vinna saman í Múlaþingi

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa komist að samkomulagi um myndun meirihluta í Múlaþingi, nýja sameinaða sveitarfélaginu á Austurlandi.

Gauti Jóhannesson (D) og Stefán Bogi Sveinsson (B) leiða flokkana tvo sem mynda meirihluta.
Gauti Jóhannesson (D) og Stefán Bogi Sveinsson (B) leiða flokkana tvo sem mynda meirihluta.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur hafa kom­ist að sam­komu­lagi um meiri­hluta­sam­starf í Múla­þingi, nýju sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­landi. Odd­vitar flokk­anna munu und­ir­rita og kynna mál­efna­samn­ing á raf­rænum fundi klukkan 14:30 í dag.

Við­ræður á milli flokk­anna tveggja hafa staðið yfir frá því 22. sept­em­ber, en kosið var til sveit­ar­stjórnar í nýja sveit­ar­fé­lag­inu 19. sept­em­ber. Sjálf­stæð­is­flokkur fékk mest fylgi í kosn­ing­un­um, tæp 29 pró­sent atkvæða og fjóra full­trúa í ell­efu manna bæj­ar­stjórn, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk tæp 19 pró­sent og tvo full­trúa í bæj­ar­stjórn. Saman eru flokk­arnir því með eins manns meiri­hluta og um 48 pró­sent atkvæða á bak við sig.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði tvo val­kosti til mynd­unar tveggja flokka meiri­hluta í sveit­ar­fé­lag­inu, að ræða við Fram­sókn eða Aust­ur­list­ann, fram­boð félags­hyggju­fólks í nýja sveit­ar­fé­lag­inu, sem fékk tæp 27 pró­sent atkvæða og þrjá full­trúa í bæj­ar­stjórn.

Auglýsing

Fram­boð Vinstri grænna og Mið­flokks­ins náðu svo hvort um sig einum full­trúa inn í bæj­ar­stjórn, með rúm 13 og tæp 11 pró­sent atkvæða. Mið­flokks­menn hafa sagt að Klaust­ur­málið hafi spillt fyrir sér í kosn­inga­bar­átt­unni, eins og Kjarn­inn sagði frá í gær.

Kynja­hlut­föll innan meiri­hlut­ans gagn­rýnd

Nokkur kergja hefur verið í her­búðum Aust­ur­list­ans vegna þeirrar ákvörð­unar sjálf­stæð­is­manna að ganga til við­ræðna við Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Hildur Þór­is­dóttir odd­viti Aust­ur­list­ans sagði í sam­tali við Aust­ur­frétt eftir að sú ákvörðun lá fyrir að verið væri að snið­ganga vilja kjós­enda með því að tvö stærstu fram­boðin ræddu ekki saman og gagn­rýndi einnig að ein­ungis ein kona yrði í meiri­hluta sveit­ar­stjórnar ef raunin yrði sú að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn mynd­uðu meiri­hluta.

Fréttir af sam­stjórn allra flokka á Akur­eyri urðu einnig til þess að Aust­ur­list­inn viðr­aði þá hug­mynd að sama fyr­ir­komu­lag yrði tekið upp í sveit­ar­fé­lag­inu, en það náði ekki upp á pall­borð­ið.

Sveit­ar­fé­lagið Múla­þing varð til með sam­ein­ingu Borg­ar­fjarð­ar­hrepps, Djúpa­vogs­hrepps, Fljóts­dals­hér­aðs og Seyð­is­fjarð­ar­kaup­staðar og mun ný sveit­ar­stjórn sitja fram til vors­ins 2022, er nýja sveit­ar­fé­lagið dettur inn í hinn hefð­bundna kosn­inga­takt sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins.

Enn á eftir að stað­festa að Múla­þing verði form­lega nafn sveit­ar­fé­lags­ins, en það nafn varð hlut­skarp­ast í ráð­gef­andi íbúa­kosn­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu sem fram fór með­fram for­seta­kosn­ing­unum í sum­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent