20 manna fjöldatakmarkanir eftir helgi

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að herða sóttvarnarreglur, en í þeim felast 20 manna fjöldatakmarkanir með undantekningum, auk þess sem líkamsræktarstöðum og börum verður lokað.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Hertar sótt­varn­ar­að­gerðir munu taka gildi strax eftir helgi. Þá munu fleiri en tutt­ugu manns ekki koma saman í sama rými, með nokkrum und­an­tekn­ing­um. Einnig mun börum, spila­sölum og lík­ams­rækt­ar­stöðvum verða lok­að, en sund­laugar verða áfram opn­ar.

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við frétta­stofu Vísis rétt eftir rík­is­stjórn­ar­fund í ráð­herra­bú­staðnum fyrr í dag. Boðið var til fundar eftir að Þórólfur Guðna­son sótt­varn­ar­læknir skil­aði til­lögum sínum um hertar sótt­varn­ar­að­gerðir til þess að bregð­ast við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í morg­un. 

Sam­kvæmt Katrínu munu aðgerð­irnar verða form­lega kynntar innan næsta sól­ar­hrings, en búist er við að þær taki gildi strax eftir helgi. Hún sagði til­lög­urnar snú­ast aðal­lega að frek­ari fjölda­tak­mörk­un­um, en þar verði almennt miðað við að ekki fleiri en 20 manns megi koma sam­an.

Auglýsing

Hins vegar bætir Katrín við að fleiri und­an­tekn­ingar muni gilda frá þessum tak­mörk­unum en þegar þær voru settar á fyrr í vor, til að mynda verði ákveðnar sér­reglur um útfar­ir. Aðgerð­irnar muni einnig snú­ast að lokun ýmissa staða, líkt og  bara, spila­sala og lík­ams­rækt­ar­stöðva. Hins vegar megi sund­laugar áfram verða opn­ar, þó með færri gestum en áður.

Sam­kvæmt Katrínu er nauð­syn­legt að bregð­ast hart við frek­ari útbreiðslu veirunn­ar, en mik­ill fjöldi nýrra smita auk lágs hlut­falls smita sem greind eru í sótt­kví sé mikið áhyggju­efn­i. 

61 nýtt til­felli af COVID-19 greind­ist í dag, en í 39 til­fellum var um að ræða fólk sem var utan sótt­kvíar við grein­ingu. Ekki hafa fleiri greinst utan sótt­kvíar síðan í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í vor.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent