Ársreikningar stjórnmálaflokka bráðum birtir í heild í fyrsta sinn

Stjórnmálaflokkar landsins áttu að skila inn undirrituðum ársreikningum sínum í síðasta lagi á laugardag. Þegar Ríkisendurskoðun er búin að fara yfir reikninganna, og kanna hvort þeir séu í samræmi við lög, verða þeir birtir í heild sinni í fyrsta sinn.

Alþingi
Auglýsing

Sam­kvæmt lögum áttu allir stjórn­mála­flokkar lands­ins að skila inn árs­reikn­ingi sín­um, und­ir­rit­uðum af end­ur­skoð­anda, til Rík­is­end­ur­skoð­anda í síð­asta lagi nýlið­inn laug­ar­dag. 

Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn á Rík­is­end­ur­skoðun í seint í síð­ustu viku og spurð­ist fyrir um hvort ein­hverjir þeirra stjórn­mála­flokka sem lögin ná yfir hefðu skilað inn árs­reikn­ingi, en föstu­dag var síð­asti virki dag­ur­inn áður en loka­frestur til að skila þeim inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar rann út. 

í svari frá Rík­is­end­ur­skoðun sagði að allir reikn­ingar sem borist hefðu vegna 2019, og hefðu þegar verið yfir­farn­ir, væru þegar birtir á heima­síðu stofn­un­ar­inn­ar. Eng­inn árs­reikn­ingar þeirra átta stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi hafa enn sem komið er verið birtir þar. 

Í svar­inu sagði enn frem­ur: „Um leið og árs­reikn­ingar stjórn­mála­flokka ber­ast eru þeir yfir­farnir með til­liti til þess hvort fram­lög til þeirra séu í sam­ræmi við lög. Að lok­inni þeirri athugun eru reikn­ing­arnir birtir í heild sinni á vef Rík­is­end­ur­skoð­un­ar.“

Auglýsing
Þegar það ger­ist verður það í fyrsta sinn sem árs­reikn­ingar stjórn­mála­flokka verða birtir í heild sinn­i. 

Skil færð, frestur gefin og allt birt

Ný lög um fjár­­­mál stjórn­­­mála­­flokka voru sam­­þykkt á Alþingi í des­em­ber 2018. Á meðal breyt­inga sem þau lög fólu í sér voru að stjórn­­­mála­­flokkar mega nú taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­um. Hámarks­­fram­lagið var 400 þús­und krónur en var hækkað í 550 þús­und krón­­ur. 

Auk þess var sú fjár­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­greindur í árs­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­bjóð­enda hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­ur. Hug­takið „tengdir aðil­­ar“ var auk þess sam­ræmt.

Í nýju lög­unum er einnig ákvæði um bann við nafn­lausum áróðri. Þar segir að stjórn­mála­sam­tök­um, kjörnum full­trúum þeirra og fram­bjóð­end­um, sem og fram­bjóð­endum í per­sónu­kjöri, sé óheim­ilt að fjár­magna, birta eða taka þátt í birt­ingu efnis eða aug­lýs­inga í tengslum við stjórn­mála­bar­áttu nema fram komi við birt­ingu að efnið sé birt að til­stuðlan eða með þátt­töku þeirra.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og nú er. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun mun hætta að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og birtir þess í stað árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs í fyrra þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. 

Allir stjórn­­­mála­­flokkar sem eiga full­­trúa á Alþingi skil­uðu árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­unar fyrir 1. októ­ber 2019, en lög­­bund­inn frestur þeirra til að gera slíkt rann út þá. 

Í kjöl­farið var í síð­asta sinn birtur útdráttur úr reikn­ingnum með tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum um fjár­mál flokk­anna. Hægt er að lesa um það sem kom fram í þeim útdráttum hér og hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent