„Þetta er svo mikið kjaftæði að ég trúi bara ekki að við séum að takast á við þetta núna“

Yfirlögregluþjónn er harðorður í garð þeirra sem sýnt hafa starfsfólki verslana ókurteisi vegna grímuskyldu.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
Auglýsing

„Það er eitt ótrú­legt mál sem við höfum verið að fást við núna en það er varð­andi grímu­skyldu í versl­un­um. Nú, það er þannig að ein­stak­ling­ur­inn ber auð­vitað ábyrgð á því að vera með grímu og það er grímu­skylda. Það er ótrú­lega að heyra dæmi frá starfs­fólki versl­ana um ókurt­eisi, hót­anir og nán­ast ofbeldi frá við­skipta­vinum þegar starfs­menn, sem oft er ungt fólk, eru við dyrnar og að leið­beina fólki. Þetta er alveg ótrú­leg­t.“

Þetta sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á blaða­manna­fundi almanna­varna í morg­un.

„Við erum að reyna að vinna þetta saman og þetta er svo mikið kjaftæði að ég trúi bara ekki að við séum að takast á við þetta nún­a,“ sagði hann. 

Auglýsing

Hertar sótt­varna­ráð­staf­anir voru kynntar á föstu­dag­inn og tóku gildi strax á mið­nætti sama dag en aðgerð­irnar gilda til 17. nóv­em­ber næst­kom­andi. Ein­ungis 10 mega koma sam­an, nema í útförum, mat­vöru­versl­un­um, apó­tekum og almenn­ings­sam­göng­um. Ein­ungis apó­­tek og mat­vöru­versl­­anir eru und­an­þegnar þessum fjölda­tak­­mörk­un­um, en þar mega 50 manns vera innan sama rýmis og að hámarki 100 ef versl­­anir eru mjög stór­­ar. Tíu manna fjölda­tak­­mark­­anir gilda um aðrar versl­an­­ir.

Hvetur þá sem ekki eru með „lífs­nauð­syn­lega starf­semi“ að sækja ekki um und­an­þágur

Víðir sagði á fund­inum að mörg hund­ruð beiðnir um und­an­þágur frá nýjum reglum um fjölda­tak­mark­anir hefðu borist og að starfs­fólk sótt­varna­lækn­is, almanna­varna og heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins hefði unnið fram á nótt við að svara þessum und­an­þágu­beiðn­um.

„Það gengur ágæt­lega en þetta eru hund­ruð beiðna. Það er mik­il­vægt ef við ætlum að horfa á mark­mið þess­ara aðgerða og ef þær eiga að skila ein­hverjum árangri að það séu ekki allir að leita að und­an­þág­um. Ég held að það hafi verið til­tölu­lega skýrt þegar þessar reglur voru kynntar á föstu­dag­inn að við værum að fara í hörð­ustu aðgerðir sem hafa verið í þessum málum hingað til og í lýð­veld­is­sög­unni og þau nást ekki ef það á að veita und­an­þágur til allra. Þannig að við hvetjum þá sem eru ekki bein­línis með lífs­nauð­syn­lega starf­semi í gangi að vera ekki að sækja um und­an­þág­ur, heldur aðlaga sig að þessu ástandi næstu vik­urn­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent