Bjarni: „Lít ekki svo á að þessi atburður kalli á afsögn“

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir skiljanlegt að að fólk verði fyrir vonbrigðum með að hann hafi brotið gegn sóttvarnareglum. Hann sjái eftir því en telur sig ekki þurfa að segja af sér. Verkefni ríkisstjórnarinnar sé of stórt til þess.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist skilja von­brigði fólks með að hann hafi verið á stað þar sem sótt­varna­reglur hafi verið brotn­ar. „Það er ekki til eft­ir­breytni og ég sé mjög eftir því. Ég hins vegar lít ekki svo á að þessi atburður kalli á afsögn af minni hálf­u.“

Þetta kemur fram í við­tali við Bjarna sem birt er á Vísi. Þar segir hann enn fremur að sér líði þannig að hann sé í miðju verki. „Það reyndar vill þannig til, það er ekki mjög langt til kosn­inga, en við erum í miðju verki við að reisa efna­hag okkar við og vinna bug á þessum far­aldri og mér finnst þetta mál ekki vera til­efni fyrir mig til þess að stíga frá því verki. Það er ein­fald­lega of stórt og mikið verk­efni til þess að klára.“

Auglýsing
Hann seg­ist hafa rætt málið við for­menn hinna stjórn­ar­flokk­anna, Katrínu Jak­obs­dóttur og Sig­urð Inga Jóhanns­son. Þá hafi hann einnig rætt það við heil­brigð­is­ráð­herra, sótt­varna­lækni og Víði Reyn­is­son. Bjarni segir í við­tal­inu við Vísi að hann skilji reiði fólks vegna þeirra aðstæðna sem hann kom sér í. „Ég hef alltaf litið þannig á, og reyni að breyta þannig, að þarna hafi ég gert mis­tök, að hegða mér þannig að ég valdi ekki öðrum hættu á að smit­ast. Og það er skilj­an­legt að fólk sé fyrir von­brigðum ef það sér ein­hvern mis­brest á því.“

Ráð­herra í sam­kvæmi þar sem reglur voru þver­brotnar

Greint var frá því í dag­­­bók lög­­­regl­unnar í gær­morgun að ónefndur ráð­herra í rík­­­­is­­­­stjórn Íslands hefði verið á meðal 40 til 50 gesta sem voru í sam­­­­kvæmi í sal í útleigu í mið­­­­borg Reykja­víkur í gær­­­­kvöldi.

­Upp­­­lýst var síðar að sá salur var lista­safnið í Ásmund­­­ar­­­sal. Tölu­verð ölvun var í sam­­­­kvæm­inu og eng­inn þeirra sem þar voru staddir voru með grímur fyrir and­lit­i. 

Lög­­reglan leysti upp sam­­kvæmið vegna þess að það braut í bága við sótt­varna­reglur og greindi frá því í morgun að á meðal gesta hefði verið ráð­herra í rík­­is­­stjórn Íslands. 

Bjarni setti svo stöð­u­­upp­­­færslu á Face­book klukkan 10:39 í gær­morgun þar sem hann stað­­festi að hann hefði verið umræddur ráð­herra. Þar sagði meðal ann­­ars: „Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­un­­­um. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­­­­­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­­­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inn­­i­­­lega afsök­unar á þeim mis­­­tök­­­um.“

Katrín gerir ekki kröfu um afsögn

Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra sagði fyrr í dag við Vísi að hún geri ekki kröfu um að Bjarni segi af sér eftir að hann varð upp­­­vís af því að brjóta sótt­varna­reglur á Þor­láks­­messu. 

Þar sagði Katrín að hún hafi rætt við Bjarna í gær og tjáð honum óánægju sína með mál­ið. „Svona atvik skaðar traustið á milli flokk­anna og gerir sam­­starfið erf­ið­­ara. Sér­­stak­­lega vegna þessa að við stöndum í stór­ræðum þessa dag­ana, hins vegar er sam­­staðan innan stjórn­­­ar­innar verið góð og ég tel okkur hafa náð miklum árangri í því sem við erum að vinna að. Við munum halda því ótrauð áfram.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent