Heimskviður aftur á dagskrá Rásar 1

Einum og hálfum mánuði eftir að tilkynnt var um að Heimskviður, fréttaskýringaþáttur um erlend málefni, yrði ekki lengur á dagskrá Rásar 1 hefur stjórnendum RÚV snúist hugur.

Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir erum ritstjórar Heimskviða.
Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir erum ritstjórar Heimskviða.
Auglýsing

Frétta­­skýr­inga­þátt­­ur­inn Heimskvið­­ur, sem hafði verið á dag­­skrá Rásar 1 und­an­farið rúmt ár, var gert að hætta göngu sinni í des­em­ber vegna hag­ræð­ing­­ar­að­­gerða hjá Rík­­is­út­­varp­inu sem kalla á upp­­­stokkun í dag­­skránni. Um er ræða þátt sem hefur miðlað ítar­­legum umfjöll­unum um erlend mál­efn­i.

Nú, tæpum tveimur mán­uðum síð­ar, hefur verið ákveðið að setja Heimskviður aftur á dag­skrá og mun hann hefja end­ur­göngu sína á Rás 1 á ný 23. jan­úar og verður fram­vegis á laug­ar­dögum kl. 12:40.

Auglýsing
Þátturinn er sam­starfs­verk­efni Rásar 1 og frétta­stofu RÚV. Umsjón­ar­menn og rit­stjórar þátt­ar­ins verða sem fyrr Birta Björns­dóttir og Guð­mundur Björn Þor­björns­son. Í til­kynn­ingu frá RÚV er haft eftir Birtu að við­brögð hlust­enda, bæði á meðan að þátt­ur­inn var í loft­inu og þegar greint var frá því að hann yrði tek­inn af dag­skrá, hafi sýnt að áhugi fólks á erlendum fréttum sé ótví­ræð­ur.

Guð­mundur segir á sama stað að þátt­ur­inn verði með örlítið breyttu sniði. „Hann verður 30 mín­útur og sem fyrr leit­umst við við að gera ítar­legar og vand­aðar frétta­skýr­ingar um mál­efni líð­andi stund­ar, um allt það sem ger­ist ekki á Ísland­i.“

Þegar ákveðið var að taka Heimskviður af dag­skrá í lok nóv­em­ber sagði Þröstur Helga­son, dag­skrár­stjóri Rásar 1, í sam­tali við Kjarn­ann að það væri gert vegna hag­ræð­ing­ar­að­gerða.

„Við erum að setja á dag­­skrá nýjan þátt í hádeg­inu sem heitir ein­fald­­lega Hádeg­ið. Þar er um að ræða frétta­þátt sem inn­i­heldur frétta­­skýr­ing­­ar, þar á meðal erlendar í anda þeirra sem voru í Heimskvið­um, við­­töl og umræð­­ur­,“ sagði Þröstur þá í svari sínu, en hann boð­aði líka að í upp­hafi þessa árs yrði nýr þáttur með erlendum frétta­skýr­ingum tek­inn á dag­skrá Rásar 1.

Nú hefur verið ákveðið að sá þáttur verði Heimskvið­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent