Finnst það „mikill dómgreindarbrestur“ hjá Áslaugu að hafa hringt í lögreglustjórann

Þingmaður Viðreisnar gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að hringja í lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögreglan upplýsti um að annar ráðherra, formaður flokks hennar, hefði verið í samkvæmi sem leyst var upp vegna gruns um sóttvarnarbrot.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Auglýsing

„Hegðun og gerðir ráð­herra þennan dag finnst mér hins vegar mik­ill dóm­greind­ar­brestur og kalla á það að ráð­herra svari því af hvaða ástæðu hún hafði sam­bandi við lög­reglu­stjór­ann þennan dag og eftir hverju hún var að leita.“ Þetta sagði Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisn­ar, á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins. 

Þar vís­aði hún í að í gær­kvöldi opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefði hringt tví­vegis í Höllu Berg­þóru Björns­dótt­ur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal kvöldið áður, þar sem grunur er um að sótt­varn­ar­brot hafi verið framið. Umræddur ráð­herra reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Áslaug Arna sagði í gær við RÚV að sam­töl hennar við lög­reglu­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­lýs­inga­gjöf. Að öðru leyti hafi hún ekki rætt umrætt mál við lög­reglu­stjór­ann og „ekki haft afskipti af rann­sókn þessa máls eða ann­arra.“

Setti lög­reglu­stjóra í óþægi­lega stöðu

Þor­björg Sig­ríður sagði í pontu Alþingis í dag að hún ætl­aði sér ekki að full­yrða neitt um það af hvaða ástæðu dóms­mála­ráð­herra kaus sjálf að hringja í lög­reglu­stjóra tvisvar á aðfanga­dag, enda viti hún það ekki umfram þær skýr­ingar sem ráð­herra hefur sjálf gefið á því. „En skýr­ingar hennar sjálfrar benda hins vegar til þess að erindið gat í það minnsta mjög auð­veld­lega sett lög­reglu­stjóra þarna í óþægi­lega stöð­u.“

Auglýsing
Hún spyr hvort það hafi virki­lega ekki hvarflað að Áslaugu Örnu að sam­skiptin og bein sím­töl hennar sjálfrar til lög­reglu­stjóra væru óeðli­leg á þessum tíma­punkti? „Til lög­reglu­stjóra sem þarna var í blá­byrjun rann­sóknar á meintum brotum á sótt­varn­ar­lögum að hálfu sam­flokks­manns og for­manns þessa ráð­herra. Krafan er ekki bara sú að stjórn­völd tjái sig ekki um ein­stök mál heldur gæti þess í hví­vetna að snerta ekki á þeim heldur og að þau gefi aldrei annað til kynna. Og mér finnst sím­tal ráð­herra til lög­reglu­stjóra á þessum tíma­punkti því miður til þess fallið að vekja upp spurn­ingar á skiln­ingi á þessum mörk­um.“

Málið enn til með­ferðar hjá lög­reglu

Ásmund­ar­sals­málið snýst um að í dag­bók lög­regl­unnar að morgni aðfanga­dags 2020 hafi komið fram að milli 40-50 manns hafi verið staddir í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu eftir að búið hafi verið átt að rýma sal­inn sam­kvæmt sótt­varn­ar­regl­u­m. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Benediktsson.

Í sam­kvæm­inu voru fjar­lægð­ar­mörk og grímu­skylda enn fremur ekki virt og ölvun gesta verið tals­verð. Fólk hefði jafn­vel faðm­ast og kysst í kveðju­skyni eftir að sam­kvæmið var leyst upp.

Á meðal gesta reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­son. Hann sagði í við­tölum eftir að málið komst í hámæli að hann teldi ekki ástæðu til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna máls­ins. 

Þegar greint var frá því að form­leg rann­sókn væri hafin á sam­kom­unni, þann 30. des­em­ber í fyrra, sagði í til­kynn­ingu frá lög­reglu að rann­sóknin fæli meðal ann­ars í sér að yfir­­fara upp­­­tökur úr búk­­mynda­­vélum lög­­­reglu­­manna með til­­liti til brota á sótt­­vörn­­um. Rann­sókn­inni lauk seint í jan­úar og málið var í kjöl­farið sent til ákæru­sviðs sem tekur ákvörðun um það hvort að sekt­ar­boðum verði beitt eða hvort ekki þyki ástæða til þess. Þar er málið enn til með­ferð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent