Segir það vekja furðu hvernig stjórnmálamenn og fjölmiðlar „hamast á dómsmálaráðherra“

Hreinn Loftsson segir dómsmálaráðherra ekki hafa gert neitt rangt þegar hún hringdi í lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag vegna Ásmundarsalsmálsins. Fjölmiðlar hafi ekki virt helgifrið og heimtað svör frá ráðherranum.

Hreinn Loftsson, lögmaður og annar aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Hreinn Loftsson, lögmaður og annar aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Hreinn Lofts­son, annar aðstoð­ar­manna Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra, segir það vekja „furðu hvernig ákveðnir fjöl­miðlar og sumir stjórn­mála­menn hafa ham­ast á dóms­mála­ráð­herra“ vegna sím­tala hennar til Höllu Berg­þóru Björns­dótt­ur, lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á aðfanga­dag 2020 vegna Ásmund­ar­sals­máls­ins svo­kall­aða. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Hreinn birti á Face­book seint í gær­kvöldi.

Þar segir Hreinn að ekk­ert hafi komið fram varð­andi sím­tölin annað en að ráð­herr­ann hafi verið að afla skýr­inga og upp­lýs­inga um „mjög óvenju­lega“ dag­bók­ar­færslu lög­reglu á meintu sótt­varna­broti í Ásmund­ar­sal kvöldið áður, á Þor­láks­messu. Í umræddri dag­bók­ar­færslu, sem send var á fjöl­miðla að morgni aðfanga­dags í fyrra, sagði að einn „hátt­virtur ráð­herra“ hefði verið við­staddur veislu í salnum þar sem grunur var um sótt­varn­ar­brot. Síðar var stað­fest að sá ráð­herra var Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags- og við­skipta­ráð­herra. 

Auglýsing
Hreinn segir að Áslaug Arna hafi ekki verið að skipta sér að rann­sókn máls­ins með sím­tölum sínum til lög­reglu­stjór­ans eða að hlut­ast til um ein­stakar lög­reglu­að­gerð­ir. „Kannski hefði farið best á því að láta helg­ina líða en þá verður á hinn bóg­inn að hafa í huga að tíma­setn­ing lög­regl­unnar á jóla­kveðj­unni til „hátt­virts ráð­herra“ var í hæsta máta sér­kenni­leg og kall­aði á skýr­ingar af hennar hálfu án frek­ari drátt­ar. Fjöl­miðlar virtu engan helgifrið og heimt­uðu svör frá dóms­mála­ráð­herra við ýmsum spurn­ing­um. Honum var aftur nauð­syn­legt að afla sér upp­lýs­inga frá lög­regl­unni til að geta áttað sig á mál­inu og til að geta svarað og brugð­ist við með eðli­legum og réttum hætti. Þetta gerði ráð­herr­ann með sím­tölum sínum við lög­reglu­stjór­ann á aðfanga­dag og var í fullum rétti til þess.“

Vissi að Bjarni hefði verið í Ásmund­ar­sal

Nýverið opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna hefði hringt tví­­­­­­­vegis í Höllu Berg­þóru á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­­­­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­­­­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­­­­kvæmi í Ásmund­­­­ar­­­­sal kvöldið áður, þar sem grunur er um að sótt­­­­varn­­­­ar­brot hafi verið framið. Umræddur ráð­herra reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­­­­son, for­­­­maður Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins og fjár­­­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. Áslaug Arna sagði í lið­inni viku við RÚV að sam­­­­töl hennar við lög­­­­­­­reglu­­­­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­­­­lýs­inga­­­­gjöf við gerð dag­­bók­­ar­­færslna lög­­­reglu. „Fjöl­miðlar spurðu mig hvort hún væri eðli­­leg. Ég þekkti ekki verk­lag dag­­bók­­ar­­færslna lög­­regl­unnar og spurði aðeins um það.“

Heim­ildir Kjarn­ans herma að Áslaug Arna hafi verið spurð um það þegar hún mætti á fundi stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefndar í gær­morgun hvort hún hafi fengið upp­­lýs­ingar um verk­lags­­reglur hjá lög­­­reglu­­stjór­an­um, og að hún hafi svarað því ját­andi. Þeim upp­­lýs­ingum hafi hins vegar ekki verið miðlað til neinna fjöl­miðla. 

Þar sagð­ist Áslaug Arna ekki hafa verið í sam­bandi við Bjarna áður en hún hringdi í Höllu Berg­þóru en í sam­tali við RÚV eftir fund­inn stað­festi Áslaug Arna að hún hafi vitað að Bjarni væri hinn „hátt­virti ráð­herra“ ­sem minnst hafði verið á þegar hún hringd­i. 

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd ákvað í gær að kalla lög­reglu­stjór­ann á fund sinn í dag og fá hennar hlið á mál­in­u. 

Þor­­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­­maður Við­reisnar sem situr í nefnd­inni, tók málið upp undir liðnum störf þings­ins í síð­­­ustu viku og sagði þar að hegðun Áslaugar Örnu og gerðir væru „mik­ill dóm­­greind­­ar­brest­­ur“ að hennar mati. Erindið hafi getað sett lög­­­reglu­­stjór­ann í „óþæg­i­­lega stöð­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent