Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur í dag tilkynnt um niðurstöðu sína vegna sektar sem lögð hafði verið á Norvik hf., móðurfélag BYKO, vegna meints samráðs á byggingavörumarkaði. Niðurstaða áfrýjunarnefndar er sú að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um 650 milljóna króna sekt er ógilt en félaginu gert að greiða tíu 65 milljónir króna í sektargreiðslu vegna brota gegn samkeppnislögum.
Stjórn BYKO telur niðurstöðuna áfangasigur. „BYKO telur niðurstöðuna viðurkenningu á því að Samkeppniseftirlitið hafi farið offari í þessu máli allt frá byrjun og mun á næstu dögum taka ákvörðun um með hvaða hætti verður brugðist við,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn BYKO.
Samkeppniseftirlitið tilkynnti um sektarákvörðun sína þann 15. maí síðastliðinn. Í yfirlýsingu frá stjórninni segir að að ítrasta réttar verði leitað fyrir dómstólum, endi telji stjórn BYKO að engin lög hafi verið brotin.
„Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins var að mati forsvarsmanna BYKO í beinni andstöðu við úrskurð fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjaness á síðastliðnu vori þar sem 11 af 12 sakborningum í sama máli voru sýknaðir. Dómurinn taldi gögn málsins sýna það með óyggjandi hætti að verðsamkeppni á byggingavörumarkaðnum væri mikil. Orðrétt sagði í niðurstöðum dómsins: „Benda öll þessi skilaboð til þess að hið gagnstæða hafi verið, mikil og hörð samkeppni, en ekki verðsamráð“. Vandséð er hvernig hægt var að komast að svo ólíkri niðurstöðu í tveimur málum sem fjalla um sömu málsatvik, þ.e. annars vegar í niðurstöðu fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjaness og hins vegar í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Að mati BYKO tekur Áfrýjunarnefnd samkeppnismála undir með dómstólnum um að óeðlilega hátt hafi verið reitt til höggs. BYKO hefur frá upphafi haldið fram sakleysi sínu gagnvart hvers kyns ásökunum um ólögmætt verðsamráð. Enda þótt Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komist að þeirri niðurstöðu að sektarfjárhæðin skuli einungis vera 10% af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er ljóst að nefndin hefur að engu framangreinda niðurstöðu héraðsdóms um að ekki hafi verið um verðsamráð að ræða. BYKO lítur á úrskurð áfrýjunarnefndar sem áfangasigur og telur sig vera saklaust af hvers kyns ólögmætu verðsamráði. BYKO mun leita allra leiða til þess að fá þá einörðu afstöðu sína staðfesta,“ segir í tilkynningu stjórnar BYKO.
Fréttin verður uppfærð.