„Aftur ver fjármálaráðherra Íslands titilinn um dýrustu bjórkrús í Evrópu“

Áfengisgjald og dýrasta bjórkrús í Evrópu voru til umræðu á Alþingi í dag. Þingmaður Viðreisnar spurði fjármála- og efnahagsráðherra hvar ystu mörk Sjálfstæðisflokksins í skattahækkunum liggja.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar, spurði fjármála- og efnahagsráðherra hvar ystu mörk Sjálfstæðisflokksins í skattahækkunum liggja.
Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar, spurði fjármála- og efnahagsráðherra hvar ystu mörk Sjálfstæðisflokksins í skattahækkunum liggja.
Auglýsing

„Áfeng­is­skattar á Íslandi eru þeir hæstu í Evr­ópu og þótt víðar væri leit­að. Bjór­inn á Íslandi er fyrir vikið sá dýr­asti í Evr­ópu og þótt víðar væri leit­að,“ sagði Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisn­ar, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag, áður en hún vís­aði í orð Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem hann lét falla um áfeng­is­gjöld fyrir nokkru.

„Það er mín skoðun að við séum komin algjör­lega út í ystu mörk á skatt­lagn­ingu, þá er ég ein­fald­lega að vísa til þess að við erum lík­lega með eina dýr­ustu bjór­krús í Evr­ópu. Mér finnst ekki endi­lega að það eigi að vera þannig,“ sagði Bjarni.

Þor­björg Sig­ríður sagði þetta hörð orð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um eigin skatta­stefnu. „Og sami fjár­mála­ráð­herra leggur núna fram fjár­laga­frum­varp þar sem þetta áfeng­is­gjald, hans sjálfs, hækkar um heil 7,7 pró­sent. Það kom þá kannski bara í ljós að fjár­mála­ráð­herra fann að hann var ekki kom­inn að ystu mörk­um, þessum ystu mörkum skatt­lagn­ingar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eða fann ein­hver ný ystu mörk í þeim efn­um,“ sagði Þor­björg á þingi í dag.

Auglýsing

Í fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að hækka allskyns neyslu­skatta, skatta sem launa­fólk greiðir í rík­is­sjóð, á næsta ári. Þetta eru til að mynda áfeng­is-, tóbaks-, bens­ín-, olíu-, kolefn­is-, og kíló­­metra­­gjald. Alls er lagt til að áfeng­is- og tóbaks­gjaldið hækki um 7,7 pró­sent milli ára.

Þá ætlar rík­is­sjóður að auka tekjur um 700 millj­ónir króna á næsta ári með því að draga úr afslætti í toll­frjálsum versl­unum þannig að áfeng­is­gs­gjaldið í þeim fari úr tíu í 25 pró­­sent og tóbaks­­gjaldið úr 40 í 50 pró­­sent. Þetta mun fyrst og síð­­­ast hafa áhrif á frí­höfn­ina í Leifs­­stöð þar sem ferða­­menn hafa hingað til getað keypt ódýr­­ara áfengi og tóbak en ann­­ar­s­­staðar á land­in­u.

Þor­björg sagði þessar hækk­anir þó ekki koma á óvart þar sem rík­is­stjórnin hafi litið á það sem skyn­sam­lega aðgerð að hækka áfeng­is­gjöld í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum þegar „veit­inga­húsin reru líf­róður vegna sam­komu­tak­mark­ana í heims­far­aldri“ og gera róð­ur­inn þannig þyngri.

Allir sem flytja inn eða fram­­­­­leiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfeng­is­­­­­gjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota. Áfeng­is­­­­­gjald er greitt af neyslu­hæfu áfengi sem í er meira en 2,25 pró­­­­­sent af vín­­­­­anda að rúm­­­­­máli. Þessu gjaldi er velt út í verð­lag og því hækkar það útsölu­verð til neyt­enda.

Tekjur vegna áfeng­is­gjalds­ins á næsta ári eru áætl­­­aðar um 25,5 millj­­­arðar króna sem er 1,7 hærra en áætlað er fyrir 2022. Tekjur rík­­­is­­­sjóðs af áfeng­is­gjaldi hafa því hækkað um 37 pró­­­sent frá 2018, eða í krónum talið eða um 6,9 millj­­­arða króna.

Hækk­anir ekki í takt við mark­mið um að halda verð­bólgu í skefjum

Þor­björg Sig­ríður benti á að Félag atvinnu­rek­enda, auk fjölda ann­arra sam­taka, hafa gagn­rýnt hækkun á áfeng­is­gjaldi sem og fleiri gjöld­um.

„Fé­lag atvinnu­rek­enda nefnir að engri rík­is­stjórn eða lög­gjaf­ar­sam­kundu í þeim löndum sem Ísland ber sig saman við detti í hug að ganga jafn lang­t,“ sagði Þor­björg Sig­ríð­ur.

Ferða­þjón­ustan og hags­muna­verðir hennar hafa einnig gagn­rýnt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp á ýmsan hátt og telja hækkun gjalda á áfengi, tóbak og elds­neyti muni draga úr getu Íslands til að keppa um ferða­menn. Hærra verð í frí­höfn­inni muni leiða af sér að ferða­menn kaupi áfengi frekar á brott­far­ar­flug­völl­um, taki það með í hand­far­angri og þyngi vél­arn­ar.

Þor­björg Sig­ríður sagði að hækk­an­irnar muni hafa áhrif á verð­lag og verð­bólgu og ganga á engan hátt í takt við mark­mið fjár­mála­ráð­herr­ans sjálfs um að halda verð­bólgu í skefj­um.

„Hæsta áfeng­is­verð Evr­ópu hækkar enn. Aftur ver fjár­mála­ráð­herra Íslands tit­il­inn um dýr­ustu bjór­krús í Evr­ópu. Og spurn­ingin sem þá stendur eftir hlýtur að vera: Hvar liggja eig­in­lega þessi ystu mörk Sjálf­stæð­is­flokks­ins í skatta­hækk­un­um?“ spurði Þor­björg Sig­ríð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent