Formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ), Sigríður Dögg Auðunsdóttir, sendi bréf um helgina, fyrir hönd stjórnar BÍ, á Harald Johannessen, framkvæmdastjóra Árvakurs, og Magnús Kristjánsson, þar sem stjórnin lýsti óánægju með birtingu auglýsingar Samherja sem hún lýsir sem hluta „af ófrægingarherferð gegn Helga Seljan og félögum hans í Kveik“.
Þetta kemur fram á vef félagsins en í bréfinu segir að á fjölmiðlum séu skörp skil milli auglýsingadeilda og ritstjórna en með þessari auglýsingu hafi verið stigið yfir þá línu því herferð Samherja sé ekki aðeins herferð gegn einum fréttamanni eða einni ritstjórn heldur beinist hún gegn öllum blaðamönnum og öllum ritstjórnum, þar á meðal blaðamönnum á mbl.is
Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að stór auglýsingaborði hefði birst á mbl.is, sem oft er mest lesni fréttavefur landsins, sem á stóð „Ábyrgðarleysi í Efstaleiti“. Auglýsingin var frá útgerðarfyrirtækinu Samherja og ef ýtt var á hlekkinn þá var farið inn á Youtube-síðu fyrirtækisins og á nýtt myndband sem það hafði gert um Helga Seljan, blaðamann hjá fréttaskýringaþættinum Kveik, og RÚV.
Um er að ræða þrettánda myndbandið sem Samherji hefur látið framleiða til að draga úr trúverðugleika þeirra sem stóðu að umfjöllun um athæfi fyrirtækisins í Namibíu sem sýnd var í nóvember 2019. Helsta skotmark fyrirtækisins í myndböndunum er, auk Helga, Jóhannes Stefánsson, uppljóstrarinn sem er í lykilhlutverki í rannsóknum á hendur Samherji á Íslandi og í Namibíu.
Í nýja myndbandinu er kvartað yfir að niðurstaða siðanefndar RÚV í nýlegu kærumáli Samherja á hendur á annan tug starfsmanna fjölmiðlafyrirtækisins, þar sem Helgi var talinn hafa verið brotlegur við siðareglur vegna fjögurra ummæla sem hann hafi látið falla á samfélagsmiðlum, muni ekki hafa þær afleiðingar að Helga verði gert að hætta umfjöllun um Samherja.
Í texta sem fylgir myndbandi að í ljósi niðurstöðu siðanefndarinnar sé „óhjákvæmilegt að draga þá ályktun að fréttamaðurinn hafi verið vanhæfur til að fjalla um Samherja vegna persónulegrar afstöðu gegn fyrirtækinu og stjórnendum þess“. Í myndbandinu, sem er í kostaðri dreifingu á Youtube, er einnig kvartað yfir því að RÚV birti „ekki jákvæðar fréttir um Samherja og neitar að fjalla um mistök sín gagnvart fyrirtækinu“.
Auglýsingin liður í ófrægingarherferð Samherja gegn Helga Seljan
Í bréfi stjórnar BÍ til Árvakurs segir að auglýsingin á mbl.is sem er tengd á myndband Samherja hafi þann eina tilgang að reyna að þvinga fram bann við því að Helgi Seljan fjalli um málefni fyrirtækisins og sé því markmið þess að þagga niður í þeim fréttamanni sem hve mest hefur haft málefni fyrirtækisins til umfjöllunar. „Slíkt er alvarleg aðför að frjálsri fjölmiðlun og gróf atlaga að fréttamanni þar sem vegið er að starfsheiðri hans. Aukinheldur er auglýsingin liður í ófrægingarherferð Samherja gegn Helga Seljan og samstarfsfélögum hans þar sem því er margítrekað ranglega haldið fram að vinnubrögðum hafi verið ábótavant við gerð frétta um fyrirtækið og stjórnendur þess,“ segir í bréfinu.
Stjórnin fer þess því á leit við stjórnendur Árvakurs að þeir taki tillit til þeirra sjónarmiða sem hér eru talin upp, komi sú staða upp aftur að auglýsandi óskar eftir birtingu auglýsingar þar sem vegið er að starfsheiðri fréttamanns eða fréttamanna. Ennfremur óskar félagið eftir því að fulltrúi fyrirtækisins mæti á umræðufund með félagsmönnum sem haldinn verður á fimmtudagskvöld í næstu viku, þar sem umræðuefnið er meðal annars siðferðileg álitaefni í tengslum við birtingu auglýsinga í íslenskum miðlum og ábyrgð fjölmiðla.
Bréf stjórnar BÍ til Haraldar Johannessen, framkvæmdastjóra Árvakurs og Magnúsar Kristjánssonar auglýsingastjóra.
Reykjavík 1. maí 2021
Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir óánægju með ákvörðun stjórnenda Ávakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, um birtingu auglýsingar frá fyrirtækinu Samherja á vef mbl.is dagana 23. - 28. apríl sl.. Auglýsingin er liður í áróðursherferð Samherja gegn Helga Seljan, fréttamanni á RÚV, og samstarfsfélögum hans, sem staðið hefur linnulaust í eitt og hálft ár.
Á fjölmiðlum eru skörp skil milli auglýsingadeilda og ritstjórna en með þessari auglýsingu var stigið yfir þá línu því herferð Samherja er ekki aðeins herferð gegn einum fréttamanni eða einni ritstjórn heldur beinist hún gegn öllum blaðamönnum og öllum ritstjórnum, þar á meðal blaðamönnum á mbl.is
Auglýsingin á mbl.is er tengd á myndband Samherja sem hefur þann eina tilgang að reyna að þvinga fram bann við því að Helgi Seljan fjalli um málefni fyrirtækisins og er því markmið þess að þagga niður í þeim fréttamanni sem hve mest hefur haft málefni fyrirtækisins til umfjöllunar. Slíkt er alvarleg aðför að frjálsri fjölmiðlun og gróf atlaga að fréttamanni þar sem vegið er að starfsheiðri hans. Aukinheldur er auglýsingin liður í ófrægingarherferð Samherja gegn Helga Seljan og samstarfsfélögum hans þar sem því er margítrekað ranglega haldið fram að vinnubrögðum hafi verið ábótavant við gerð frétta um fyrirtækið og stjórnendur þess.
Þá bendum við jafnframt á siðareglur SÍA um auglýsingagerð og markaðsskilaboð. Í þeim segir í 12. grein: „Í auglýsingum má ekki hallmæla neinum einstaklingi eða hópi einstaklinga, fyrirtæki, [...] með það fyrir augum að kalla fram opinberlega fyrirlitningu eða hæðni.“
Birting auglýsingarinnar á mbl.is vekur ennfremur upp spurningar um stöðu blaðamanna sem starfa á mbl.is og hafa í sínum störfum ætíð í heiðri siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Í þeim segir meðal annars, í 1. grein, að „blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit almennings á starfi blaðamanns eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga.“ Markmið og inntak auglýsingarinnar setur blaðamenn mbl.is í óviðunandi stöðu því þeir þurfa að sitja undir því að efni sem þeir skrifa, jafnvel undir nafni, birtist samhliða auglýsingu Samherja.
Stjórn Blaðamannafélag Íslands fer þess því á leit við stjórnendur Árvakurs að þeir taki tillit til þeirra sjónarmiða sem hér eru talin upp, komi sú staða upp aftur að auglýsandi óskar eftir birtingu auglýsingar þar sem vegið er að starfsheiðri fréttamanns eða fréttamanna. Ennfremur óskar félagið eftir því að fulltrúi fyrirtækisins mæti á umræðufund með félagsmönnum sem haldinn verður á fimmtudagskvöld í næstu viku, þar sem umræðuefnið er meðal annars siðferðileg álitaefni í tengslum við birtingu auglýsinga í íslenskum miðlum og ábyrgð fjölmiðla.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem mál tengd Samherja koma á borð stjórnar Blaðamannafélags Íslands. Félagið sendi frá sér ályktun síðasta sumar enda eru fjölmiðlar hryggjarstykkið í lýðræðislegri umræðu og þegar að þeim er vegið með órökstuddum dylgjum er vegið að tjáningarfrelsinu sjálfu og gerð tilraun til þess að grafa undan einu mikilvægasta hlutverki blaðamennskunnar, aðhaldshlutverkinu.
Fyrir hönd stjórnar Blaðamannafélags Íslands,
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður