Vilja kanna hvort breyting á nauðgunarákvæði hafi aukið traust í garð réttarvörslukerfisins

Árið 2018 var nauðgunarákvæði almennra hegningarlaga breytt þannig að samþykki var gert að skilyrði fyrir samræði. 17 þingmenn úr fimm flokkum hafa nú óskað eftir skýrslu frá dómsmálaráðherra um áhrif lagabreytingarinnar.

Jón Steindór Valdimarsson, sitjandi varaþingmaður Viðreisnar, er flutningsmaður skýrslubeiðninnarsem nú hefur verið send Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra.
Jón Steindór Valdimarsson, sitjandi varaþingmaður Viðreisnar, er flutningsmaður skýrslubeiðninnarsem nú hefur verið send Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra.
Auglýsing

17 þing­menn úr fimm flokkum hafa óskað eftir skýrslu frá dóms­mála­ráð­herra þar sem gert er grein fyrir því hvaða áhrif breyt­ing á hegn­ing­ar­lögum þar sem hug­takið nauðgun var end­ur­skil­greint hefur haft. Breyt­ingin sem um ræðir var sam­þykkt á alþingi í mars árið 2018 og færði sam­þykki í for­grunn skil­grein­ingar á nauðg­un­ar­brotum og horfið var frá meg­in­á­herslu á verkn­að­ar­að­ferð. Með breyt­ing­unni varð sam­þykki gert að skil­yrði fyrir sam­ræði, eða eins og segir í grein­ar­gerð skýrslu­beiðn­inn­ar: „Eftir gild­is­töku lag­anna þarf sam­þykki fyrir sam­ræði eða öðrum kyn­ferð­is­mökum að hafa legið fyrir og án þess telj­ist þau varða refs­ingu. Sam­þykki þarf jafn­framt að hafa verið tjáð af frjálsum vilja.“

Í skýrslu­beiðn­inni óska skýrslu­beið­endur meðal ann­ars eftir upp­lýs­ingum sem varpað geta ljósi á það hvort breyt­ing­arnar hafi haft áhrif á fjölda til­kynntra brota. Það væri „til marks um að sam­þykki í for­grunni nauðg­un­ar­á­kvæðis sé til þess fallið að auka traust í garð rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins,“ líkt og segir í grein­ar­gerð sem fylgir skýrslu­beiðn­inni.

Einnig er óskað eftir upp­lýs­ingum um hlut­fall til­kynn­inga sem hafa leitt til ákæru ann­ars vegar og sak­fell­ingar hins vegar sem og upp­lýs­ingum um hvort verk­lagi hafi verið breytt hjá lög­reglu, ákæru­valdi eða dóm­stólum eftir að lög­unum var breytt.

Auglýsing

Óska einnig eftir sam­an­burði við útlönd

Sjónum er sér­stak­lega beint að Sví­þjóð í skýrslu­beiðn­inni en sam­bæri­leg laga­breyt­ing var gerð þar í landi í júlí árið 2018. Óskað er eftir sam­an­tekt á því hvernig áður­nefnd atriði hafa þró­ast í Sví­þjóð í kjöl­far laga­breyt­ing­ar­inn­ar. Einnig er óskað eftir sam­an­burði á breyt­ingum á fjár­munum sem varið er til for­varna og fræðslu um sam­þykki í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum á Íslandi og í Sví­þjóð með sér­stakri áherslu á fræðslu fyrir lög­reglu, ákæru­vald og dóm­stóla.

Skýrslu­beið­endur óska einnig eftir sam­an­burði á sam­bæri­legum ákvæðum í hegn­ing­ar­lögum ann­arra Evr­ópu­ríkja við ákvæðið hér heima. Þá óska skýrslu­beið­endur að lokum eftir því að í skýrsl­unni komi fram rök „með og á móti því því að rýmka nauðg­un­ar­á­kvæði almennra hegn­ing­ar­laga þannig að það taki einnig til gáleysis eða stór­fellds gáleysis og grein­ing á áhrifum þess á sönn­un­ar­færslu, með hlið­sjón af reynslu ann­arra ríkja sem hafa þegar inn­leitt slíka reglu.“

Vilja vita hvort kerfið hafi „tekið mark á þess­ari laga­breyt­ingu“

„Það er mjög mik­il­vægt að við áttum okkur á því hvort þetta hafi skilað til­ætl­uðum árangri, hvort kerfið sem sýslar með þessi mál hafi tekið mark á þess­ari laga­breyt­ingu og síð­ast en ekki síst að bera árangur okkar saman við önnur ríki sem hafa farið svip­aðar leið­ir,“ sagði Jón Stein­dór í umræðum um málið í þing­sal.

„Þetta er mjög mik­il­vægt mál því að við verðum að hafa sann­fær­ingu fyrir því að þegar við erum að lýsa yfir vilja okkar hér í þing­inu og breyta lögum að það nái fram að ganga í fram­kvæmd­inn­i,“ bætti hann við.

Líkt og áður segir standa alls 17 þing­menn úr fimm flokkum að baki skýrslu­beiðn­inn­ar; Við­reisn, Píröt­um, Sam­fylk­ing­unni, Vinstri hreyf­ing­unni - grænu fram­boði og Flokki fólks­ins. Fimm í hópi skýrslu­beið­enda voru í hópi þeirra sem lögðu fram laga­breyt­inga­til­lög­una sem sam­þykkt var árið 2018, þau Jón Stein­dór Valdi­mars­son, Hanna Katrín Frið­riks­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir úr Við­reisn, Helga Vala Helga­dóttir úr Sam­fylk­ing­unni og Andrés Ingi Jóns­son sem þá var í Vinstri­hreyf­ing­unni - grænu fram­boði en situr nú á þingi fyrir Pírata.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent