Arion lokar útibúi – tugir kílómetra í næsta banka

Útibúi Arion banka á Kirkjubæjarklaustri verður að óbreyttu lokað eftir nokkra daga. Um eina bankann á svæðinu er að ræða og eftir lokunina mun fólk þurfa að fara til Hafnar eða Víkur til að komast í banka.

Útibú Arion banka á Kirkjubæjarklaustri er eina bankaútibúið á svæðinu.
Útibú Arion banka á Kirkjubæjarklaustri er eina bankaútibúið á svæðinu.
Auglýsing

Sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps er allt annað en sátt við þá ákvörðun Arion banka að loka eina banka­úti­bú­inu á Kirkju­bæj­ar­klaustri. Lok­unin stóð einnig til fyrir um tveimur árum en var frestað. Sveit­ar­stjórn barst hins vegar til­kynn­ing 3. febr­úar síð­ast­lið­inn þess efnis að nú væri komið að því að fram­kvæma hana. Úti­bú­inu verður lokað þann 31. mars.

Sveit­ar­stjórnin mót­mælir þess­ari ákvörðun harð­lega og í bókun sem sam­þykkt var á fundi hennar í vik­unni er minnt á að útibú Arion banka á Kirkju­bæj­ar­klaustri þjóni Skaft­ár­hreppi og Öræfum „auk allra þeirra þús­unda ferða­manna og nýbúa sem eru á svæð­inu tíma­bundið hverju sinni. Ljóst er að lokun úti­bús­ins kemur til með að hafa mjög slæm áhrif á íbúa og atvinnu­líf svæð­is­ins“.

Auglýsing

Greint var frá áformum Arion banka í frétt á vef DFS.is, Frétta­vef Suð­ur­lands, fyrir um tveimur árum en þá stóð til að úti­bú­inu á Klaustri yrði lokað í enda febr­ú­ar­mán­að­ar. Þar kom fram að með lok­un­inni yrði næsta banka­útibú í Vík eða á Höfn. „Það eru 70 kíló­metrar frá Klaustri yfir á Vík og mun lengra fyrir suma Skaft­fell­inga,“ hafði blaðið eftir íbúa sem var mjög ósáttur við fyr­ir­ætl­anir bank­ans.

Sig­rún Sig­ur­geirs­dóttir skrif­aði svo aðsenda grein í Frétta­blaðið vegna máls­ins. „Þeir sem vilja búa og starfa á lands­byggð­inni verða að geta reitt sig á að grunn­þjón­usta sé til stað­ar.“

300 íbúar skor­uðu á bank­ann að hætta við

Á fundi atvinnu­mála­nefndar Skaft­ár­hrepps í febr­úar 2020 var lagður fram und­ir­skrifta­listi 300 íbúa á svæð­inu þar sem skorað var á Arion banka að end­ur­skoða ákvörðun sína.

Fólkið í Skaft­ár­hreppi lýsti yfir óánægju með að „stöðugt sé ráð­ist að grunn­þjón­ustu“ og „Arion banki sjái ekki ástæðu til að halda uppi við­un­andi þjón­ustu eftir ára­tuga sam­starf“.

Atvinnu­mála­nefnd Skaft­ár­hrepps harm­aði á fundi sínum ákvörðun stjórn­enda bank­ans sem hafði verið boðuð með fimm vikna fyr­ir­vara.

Stjórn­endur Arion banka frest­uðu lok­un­inni en nú er hún aftur komin á dag­skrá að því er fram kemur í fund­ar­gerð sveit­ar­stjórnar Skaft­ár­hrepps.

­Arion banki hagn­að­ist um 28,6 millj­­arða króna á síð­­asta ári. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­­arða króna . Til stendur að greiða 79 pró­­sent af hagn­aði árs­ins út sem arð, alls 22,5 millj­­arða króna, og kaupa eigin bréf fyrir að minnsta kosti 4,3 millj­­arða króna á kom­andi ári. Gangi þessi áform eftir mun Arion banki verða búinn að skila hlut­höfum sínum 58,3 millj­­örðum króna frá byrjun síð­­asta árs. Bank­inn hefur áform um að greiða um 30 millj­­arða króna ofan á það til hlut­hafa í nán­­ustu fram­­tíð þannig að heildar útgreiðslur nemi allt að 88 millj­­örðum króna.

Hópur starfs­manna mun að auki fá veg­lega bónusa vegna góðs gengis bank­ans á síð­asta ári, sam­tals 1,6 millj­arð. Kaup­réttur þeirra mun einnig tryggja þeim tvö­földun á fjár­fest­ingu sinni að óbreyttu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent