Atvinnuleysi í júní var 2,6 prósent: Fleiri konur atvinnulausar en karlar

14317521740_8a320556ce_z.jpg
Auglýsing

Atvinnu­leysi í júní mæld­ist 2,6 pró­sent en að með­al­tali voru 4.757 atvinnu­lausir í mán­uð­in­um. Atvinnu­lausum fækk­aði um 400 að með­al­tali frá mán­uð­inum á undan eða um 0,3 pró­sentu­stig. Atvinnu­lausum körlum fækk­aði um 291 frá maí en að með­al­tali voru 2.086 karlar á atvinnu­leys­is­skrá. Atvinnu­leysi meðal karla var 2,1 pró­sent í júní. Atvinnu­lausum konum fækk­aði um 109 frá maí og voru 2.671 kona á atvinnu­leys­is­skrá í júní. Atvinnu­leysi meðal kvenna mælist 3,2 pró­sent í mán­uð­in­um.

Þetta sýna nýjar tölur frá Vinnu­mála­stofnun yfir stöðu á vinnu­mark­að­inum í júní síð­ast­liðnum. Á lands­bygð­inni fækk­aði atvinnu­lausum um 249 milli maí og júní. Atvinnu­leysi á lands­byggð­inni mælist 2,1 pró­sent. Mest var atvinnu­leysið á Suð­ur­nesjum, þar sem það mælist 3,1 pró­sent. Minnst var atvinnu­leysið á Norð­ur­landi vestra, þar sem atvinnu­leysi mælist 1,2 pró­sent, og á Aust­ur­landi þar sem atvinnu­leysi er 1,5 pró­sent.

Auglýsing


Alls voru 5.103 atvinnu­lausir í lok júní. Þeir sem voru atvinnu­lausir að fullu voru hins vegar 4.688. Fjöldi þeirra sem verið hafa atvinnu­lausir lengur en 6 mán­uði sam­fellt var 2.387 í júní, og fækk­aði um 172 frá maí og voru um 47% þeirra sem voru á atvinnu­leys­is­skrá í júní. Fjöldi þeirra sem verið höfðu atvinnu­lausir í meira en eitt ár sam­fellt var 1.144 í júnílok, en 1.219 í maí­lok og fækk­aði því um 75 milli mán­aða og voru um 22% þeirra sem voru á atvinnu­leys­is­skrá í júní. Alls voru 740 á aldr­inum 18-24 ára atvinnu­lausir í lok júní eða um 14,5% allra atvinnu­lausra, en 845 í lok maí og fækk­aði því um 105 milli mán­aða. Í lok júní 2014 var fjöldi atvinnu­lausra á sama ald­urs­bili 952 og hefur því fækkað um 212 milli ára í þessum ald­urs­hópi. Skráð atvinnu­leysi 18-24 ára reikn­ast 2,6% miðað við áætl­aðan mann­afla 18-24 ára.



Fram kemur í til­kynn­ingu Vinnu­mála­stofn­unar að alls voru 979 erlendir rík­is­borg­arar án atvinnu í lok júní, eða 19 pró­sent atvinnu­lausra. Þar af voru 590 pólskir rík­is­borg­arar eða um 60 pró­sent erlendra rík­is­borg­ara á atvinnu­leys­is­skrá.



Laus störf í almennri vinnu­miðlun hjá Vinnu­mála­stofnun voru alls 323 tals­ins í lok júní. Flest þeirra, 125 tals­ins, voru fyrir ósér­hæft starfs­fólk og 104 fyrir þjón­ustu, sölu- og umönn­un­ar­fólk. Auk þess­ara starfa voru 40 störf laus á Starfa­torgi í lok mán­að­ar­ins, flest sér­fræði­störf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None