ÁTVR hefur hafið undirbúning að beiðni um lögbann á hendur vefverslunum með áfengi sem starfræktar eru hér á landi og hefur sömuleiðis áform um höfðun dómsmáls í framhaldinu.
Samhliða er hafinn undirbúningur lögreglukæru vegna starfsemi vefverslana með vín, sem ÁTVR segir að feli í sér grundvallarbreytingu á bæði áfengisstefnunni hér á landi og forsendum fyrir rekstri sínum, ef þær fái að starfa óáreittar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÁTVR í dag, en að undanförnu hefur ný vefverslun með vín verið nokkuð áberandi í fréttum. Sömuleiðis hefur önnur vefverslun sem selur bjór milliliðalaust beint til neytenda verið starfrækt um nokkurt skeið.
Rekstraraðilar þessar vefverslana segja að starfsemi þeirra sé lögleg, en ÁTVR segir að ákvæði áfengislaga um einkaleyfi sitt til sölu áfengis í smásölu séu „afdráttarlaus“.
„Óhjákvæmilegt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum,“ segir í tilkynningu ÁTVR.
Tilkynning ÁTVR í heild sinni
Að undanförnu hafa sprottið upp vefverslanir sem selja áfengi í smásölu hér á landi, beint til neytenda. Starfseminni er beint gegn lögbundnum einkarétti Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis, sem hefur verið ein grunnstoða íslenskrar áfengisstefnu.
Þrátt fyrir afdráttarlaus ákvæði áfengislaga og laga um verslun ríkisins með áfengi og tóbak um einkaleyfi ÁTVR til þess að selja og afhenda áfengi í smásölu fullyrða rekstraraðilar vefverslananna að starfsemi þeirra sé lögleg. Óhjákvæmilegt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum. ÁTVR hefur því hafið undirbúning að beiðni um lögbann á hendur vefverslununum og höfðun dómsmáls í framhaldi af því. Samhliða er hafinn undirbúningur lögreglukæru vegna starfseminnar.
Einkaréttur ríkisins til smásölu áfengis byggir á lýðheilsusjónarmiðum og því mati löggjafans að markmiðum um heilsu þjóðarinnar verði ekki náð með öðru og vægara móti. Verði starfsemi vefverslana í beinni samkeppni við smásölu ÁTVR látin óáreitt felur það í sér grundvallarbreytingu á áfengisstefnunni og forsendum fyrir rekstri fyrirtækisins.