ÁTVR ætlar að fara fram á lögbann á vefverslanir og undirbýr lögreglukæru

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins telur nauðsynlegt að fá úr því skorið hjá dómstólum hvort innlendar vefverslanir sem selja áfengi milliliðalaust til neytenda séu að starfa löglega, eins og rekstraraðilar þeirra vilja meina.

ÁTVR undirbýr nú lögbannsbeiðni á starfsemi vefverslana með áfengi.
ÁTVR undirbýr nú lögbannsbeiðni á starfsemi vefverslana með áfengi.
Auglýsing

ÁTVR hefur hafið und­ir­bún­ing að beiðni um lög­bann á hendur vef­versl­unum með áfengi sem starf­ræktar eru hér á landi og hefur sömu­leiðis áform um höfðun dóms­máls í fram­hald­inu.

Sam­hliða er haf­inn und­ir­bún­ingur lög­reglu­kæru vegna starf­semi vef­versl­ana með vín, sem ÁTVR segir að feli í sér grund­vall­ar­breyt­ingu á bæði áfeng­is­stefn­unni hér á landi og for­sendum fyrir rekstri sín­um, ef þær fái að starfa óáreitt­ar.

Auglýsing

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá ÁTVR í dag, en að und­an­förnu hefur ný vef­verslun með vín verið nokkuð áber­andi í frétt­um. Sömu­leiðis hefur önnur vef­verslun sem selur bjór milli­liða­laust beint til neyt­enda verið starf­rækt um nokk­urt skeið.

Rekstr­ar­að­ilar þessar vef­versl­ana segja að starf­semi þeirra sé lög­leg, en ÁTVR segir að ákvæði áfeng­is­laga um einka­leyfi sitt til sölu áfengis í smá­sölu séu „af­drátt­ar­laus“.

„Óhjá­kvæmi­legt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðil­u­m,“ ­segir í til­kynn­ingu ÁTVR.

Til­kynn­ing ÁTVR í heild sinni

Að und­an­förnu hafa sprottið upp vef­versl­anir sem selja áfengi í smá­sölu hér á landi, beint til neyt­enda. Starf­sem­inni er beint gegn lög­bundnum einka­rétti Áfeng­is- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins á smá­sölu áfeng­is, sem hefur verið ein grunn­stoða íslenskrar áfeng­is­stefn­u. 

Þrátt fyrir afdrátt­ar­laus ákvæði áfeng­is­laga og laga um verslun rík­is­ins með áfengi og tóbak um einka­leyfi ÁTVR til þess að selja og afhenda áfengi í smá­sölu full­yrða rekstr­ar­að­ilar vef­versl­an­anna að starf­semi þeirra sé lög­leg. Óhjá­kvæmi­legt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðil­um. ÁTVR hefur því hafið und­ir­bún­ing að beiðni um lög­bann á hendur vef­versl­un­unum og höfðun dóms­máls í fram­haldi af því. Sam­hliða er haf­inn und­ir­bún­ingur lög­reglu­kæru vegna starf­sem­inn­ar.

Einka­réttur rík­is­ins til smá­sölu áfengis byggir á lýð­heilsu­sjón­ar­miðum og því mati lög­gjafans að mark­miðum um heilsu þjóð­ar­innar verði ekki náð með öðru og væg­ara móti. Verði starf­semi vef­versl­ana í beinni sam­keppni við smá­sölu ÁTVR látin óáreitt felur það í sér grund­vall­ar­breyt­ingu á áfeng­is­stefn­unni og for­sendum fyrir rekstri fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent