Auglýsa fjölda starfa hjá Eflingu

Vilt þú taka þátt í að byggja upp metnaðarfyllsta stéttarfélag landsins? Á þessum orðum hefst auglýsing Eflingar í Fréttablaðinu í dag þar sem óskað er eftir fólki til starfa sem „brennur fyrir þjónustu og samvinnu við félagsfólk“.

Efling-auglýsing
Auglýsing

„Efl­ing - stétt­ar­fé­lag aug­lýsir eftir starfs­fólki sem brennur fyrir þjón­ustu og sam­vinnu við félags­fólk Efl­ingar í stórum áskor­unum næstu ára,“ segir í heil­síðu­aug­lýs­ingu Efl­ingar í atvinnu­blaði Frétta­blaðs­ins í dag.

Aug­lýst er m.a. eftir fram­kvæmda­stjóra, fjár­mála­stjóra, sviðs­stjórum þjón­ustu og vinnu­rétt­inda, sér­fræð­ingum á ýmsum svið­um, t.d. í vinnu­rétti, vinnu­mark­aðs- og lífs­kjara­rann­sóknum og í kjara­samn­ingum og kjara­samn­ings­gerð. Fimmtán störf hjá Efl­ingu eru aug­lýst sam­kvæmt vef Hag­vangs sem sér um ráðn­ing­arn­ar.

„Vilt þú taka þátt í að byggja upp metn­að­ar­fyllsta stétt­ar­fé­lag lands­ins?“ segir enn­fremur í aug­lýs­ing­unni.

Auglýsing

Öllum starfs­mönnum á skrif­stofu Efl­ingar var sagt upp í síð­ustu viku eftir að meiri­hluti stjórnar félags­ins undir for­ystu for­manns­ins Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur hafði sam­þykkt að segja upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ing­um. Hún sagði af sér for­mennsku síð­asta haust en bauð sig fram að nýju í odd­vita­sæti Bar­áttu­list­ans í kosn­ingum sem fram fóru í febr­ú­ar. List­inn hlaut 54 pró­sent atkvæða. Sól­veig Anna tók svo við for­mennsk­unni á aðal­fundi Efl­ingar í byrjun apr­íl.

Heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu í dag. Mynd: Skjáskot/Fréttablaðið

Í yfir­lýs­ingu frá Bar­áttu­list­anum vegna upp­sagn­anna í síð­ustu viku kom fram að ný ráðn­ing­ar­kjör yrðu inn­leidd „með gegn­sæi og jafn­rétti að leið­ar­ljósi“ og að starfað yrði undir nýju skipu­lagi með breyttum hæfni­kröfum og verka­skipt­ingu. Breyt­ing­arnar eru sagðar miða að bættri þjón­ustu við félags­menn og auk­inni skil­virkni í rekstri.

„Efl­ing stétt­ar­fé­lag óskar eftir að ráða fram­kvæmda­stjóra til að leiða dag­legan rekstur félags­ins og yfir­stand­andi umfangs­miklar breyt­ingar á skipu­lag­i,“ segir í aug­lýs­ing­unni um fram­kvæmda­stjóra­stöð­una. Tekið er fram að hann sé ráð­inn af stjórn og sé yfir­maður skrif­stof­unnar í umboði for­manns og stjórn­ar.

Hæfn­is­kröfur eru háskóla­próf á sviði rekstr­ar, stjórn­un­ar, fjár­mála og/eða mannauðs­stjórn­un­ar/breyt­inga­stjórn­unar og reynsla og far­sæll árangur af rekstri og stjórnun fyr­ir­tækja, stofn­ana og/eða félaga­sam­taka. Þá er „færni og metn­aður til að leiða umfangs­miklar breyt­ingar á vinnu­stað“ einnig sett sem skil­yrði.

Viðar Þor­steins­son var fram­kvæmda­stjóri Efl­ingar þar til í haust er hann hætti á sama tíma og Sól­veig Anna sagði af sér.

Hóp­upp­sögnin hjá Efl­ingu hefur verið harð­lega gagn­rýnd m.a. af for­ystu Alþýðu­sam­bands Íslands. Þá hefur Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagt að búast hafi mátt við breyt­ingum eftir sigur Sól­veigar Önnu en að hann hafi ekki átt von á upp­sögnum allra starfs­manna. Í dag, laug­ar­dag, fer fram auka­fundur í stjórn VR þar sem hóp­upp­sögnin verður rædd. Hópur þeirra starfs­manna sem sagt var upp eru félags­menn í VR.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent